Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

602/2010

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 550/2008 um flutning líflamba milli landsvæða.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað ,,1. ágúst" í 2. mgr. kemur: 15. ágúst.
  2. Við 2. mgr. bætist nýr stafliður, e. liður, sem orðast svo: Kaupandi skal hafa skráð mark í samræmi við reglugerð nr. 200/1998 um búfjármörk, markaskrár og takmörkun á sammerkingum búfjár.

2. gr.

8. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Skylt er seljanda að láta meðhöndla líflömb með lyfjum gegn sníkjudýrum fyrir flutning, á þeim svæðum eða varnarhólfum þar sem slík sníkjudýr eru talin vera landlæg.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim nr. 25/1993, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 30. júní 2010.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Arnór Snæbjörnsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.