Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

594/2013

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 507/2007 um akstursíþróttir og aksturskeppnir.

1. gr.

Á eftir orðinu "aksturskeppni" í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: og akstursæfinga.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "Landssambands íslenskra akstursíþrótta (LÍA)" í 2. tölul. 1. mgr. kemur: Akstursíþróttasambands Íslands/LÍA (AKÍS).
  2. 3. tölul. 1. mgr. fellur brott.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. Við 1. mgr. bætist eftirfarandi málsliður: Við meðferð leyfisumsóknar vegna aksturskeppni á vegum skal lögreglustjóri tilkynna þeim sveitarfélögum, sem áætlað er að aka um, um fyrirhugaða keppni og gefa þeim hæfilegan frest til að koma að athugasemdum varðandi fyrirkomulag hennar, s.s. val á akstursleið, tímasetningu o.þ.h.
  2. Í stað orðanna "á þjóðvegi án samþykkis Vegagerðarinnar" í 2. mgr. kemur: á vegum nema með leyfi veghaldara.
  3. 3. mgr. orðast svo: Eigi er heimilt að efna til aksturskeppni utan vega án samþykkis landeiganda svæðisins, enda hafi svæðið verið viðurkennt af sveitarstjórn til aksturskeppni, sbr. 16. gr.

4. gr.

Í stað orðanna "LÍA, akstursíþróttanefndar eða sérsambands á vegum ÍSÍ eða LÍA" í 1. mgr. 5. gr. kemur: frá aðilum tilgreindum í 1. mgr. 2. gr.

5. gr.

Við 8. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi: Ökutæki í aksturskeppnum sem ekki uppfylla skilyrði skráningar hjá Umferðarstofu skulu hafa hlotið skráningu samkvæmt 18. gr.

6. gr.

18. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Hvert það ökutæki sem ætlað er til þátttöku í aksturskeppni og ekki uppfyllir skilyrði skráningar hjá Umferðarstofu skal skráð hjá því sambandi sem tilgreint er í 1. og 2. tölul. 1. mgr. 2. gr. og á við um viðkomandi ökutæki. Gefið skal út sérstakt skráningarskírteini sem lýsir tækinu ásamt einkvæmu skráningarnúmeri þess. Eigandi ökutækis er ábyrgur fyrir því að merkja tækið skráningarnúmeri ökutækisins svo það sé óafmáanlegur hluti ökutækisins.

Fyrir hverja keppni skal ökutæki sem skráð er skv. 1. mgr. skoðað af þar til kvöddum eftirlitsmönnum sem samþykktir eru af útgefanda skráningarskírteinis viðkomandi ökutækis ásamt því að það standist keppnisreglur FIA, FIM og sérstakar keppnisreglur þess aksturssambands sem að keppninni stendur.

Við skoðun skal liggja fyrir skráningarskírteini sem og staðfesting tryggingarfélags um tryggingu ökutækis í keppninni.

Torfærutæki skráð almennri skráningu þar sem gerðar hafa verið breytingar frá upprunalegu skráningarskírteini og skráð hefur verið til aksturskeppni utan vega má ekki nota í almennri umferð nema það hafi verið fært til breytingarskoðunar hjá faggiltri skoðunarstofu og viðurkennt af Umferðarstofu sem gefur út nýtt skráningarskírteini.

7. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 21. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins "torfærutæki" í c- og d-lið 4. mgr. kemur: bifhjól.
  2. Síðari d-liður 4. mgr. verður e-liður.
  3. e-liður 4. mgr. verður f-liður.

8. gr. Gildistaka og lagastoð.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 34. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 12. júní 2013.

Hanna Birna Kristjánsdóttir.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.