Umhverfisráðuneyti

579/2002

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 236/1990, um flokkun, merkingu og meðferð eiturefna, hættulegra efna og vörutegunda sem innihalda slík efni, ásamt síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

Í stað texta í athugasemdum A og E í inngangi að efnalista, Skýringar, 9. dálki, í fylgiskjali 1, Lista yfir eiturefni og hættuleg efni, kemur texti sem birtur er í I. viðauka við reglugerð þessa.


2. gr.

Eftirtaldar breytingar eru gerðar á fylgiskjali 1, Listi yfir eiturefni og hættuleg efni:

a) Flokkun og merking tiltekinna efna breytist til samræmis við flokkun í II. viðauka við reglugerð þessa.
b) Efni sem birt eru í III. viðauka við reglugerð þessa bætast við efnalistann.
c) Efni sem birt eru í IV. viðauka við reglugerð þessa falla út af efnalistanum.
d) Flokkun tiltekinna efna breytist til samræmis við breytingu á hættusetningu H40 og tilkomu nýrrar hættusetningar H68, sbr. V. viðauka við reglugerð þessa. Efnin eru jafnframt birt í II. viðauka, sjá a) lið.


3. gr.

Eftirtaldar breytingar eru gerðar á fylgiskjali 3, H-setningar, hættusetningar:
Í stað eldri texta í hættusetningu H40 kemur:
H40 Getur hugsanlega valdið krabbameini,
og við bætist ný hættusetning, H68, sem inniheldur eldri texta H40:
H68 Getur valdið varanlegu heilsutjóni,
Til samræmis breytast viðkomandi samtengdar hættusetningar, þ.e.

H40/20 verður H68/20
H40/21 verður H68/21
H40/22 verður H68/22
H40/20/21 verður H68/20/21
H40/20/22 verður H68/20/22
H40/21/22 verður H68/21/22
H40/20/21/22 verður H68/20/21/22


4. gr.

Eftirtaldar breytingar eru gerðar á fylgiskjali 5, Helstu forsendur hættuflokkunar: Í stað texta í neðangreindum töluliðum í I. Áhrif á heilsu kemur texti sem birtur er í VI. viðauka við reglugerð þessa.

A. Hrein efni. B. Samsettar efnavörur – reikniaðferðir.
1.2.3.a Inngangur
1.7.1.2.a 1.2.b
1.7.2.2.a 1.6.b
1.8.2.b
1.8.6.b


5. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni, ásamt síðari breytingum. Höfð er hliðsjón af ákvæðum 1. tl., XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, tilskipun 67/548/EBE um samræmingu ákvæða í lögum og stjórnsýslufyrirmælum um flokkun, pökkun og merkingu hættulegra efna, eins og henni var breytt með tilskipun 2001/59/EB.
Reglugerðin öðlast gildi við birtingu.


Umhverfisráðuneytinu, 11. júlí 2002.

Siv Friðleifsdóttir.
Ingimar Sigurðsson.


I. VIÐAUKI
Fylgiskjal 1.
Listi yfir eiturefni og hættuleg efni.
Skýringar
9. dálkur Athugasemdir.
A: Samkvæmt 1. mgr. 12. gr. reglugerðarinnar ber að tilgreina heiti efnis á merkimiða eins og það er birt í fylgiskjali 1. Í fylgiskjali 1 eru stundum skráð safnheiti á borð við "-sambönd" eða "-sölt". Þá ber að tilgreina EINECS/ELINCS-heiti eða annað viðurkennt alþjóðlegt efnaheiti (s.s. IUPAC eða ISO) á merkimiða, t.d. beryllíumklóríð fyrir BeCl2.
Jafnframt skal nota hættumerki og H- og V- setningar eins og tilgreint er í fylgiskjali 1 fyrir viðkomandi efni.
Ef efni kemur fyrir í fleiri en einum efnahópi í fylgiskjali 1 og efnahóparnir hafa fengið mismunandi flokkun, skal nota strangari flokkunina fyrir viðkomandi efni.
Dæmi um efni sem kemur fyrir í fleiri en einum efnahópi:
Flokkun í efnahópi I: Rep1;H61 H33 Rep3; H62 Xn;H 20/22 N;H50-53
Flokkun í efnahópi II: Carc1;H45 T;H23/25 N;H51-53
Flokkun efnisins: Carc1;H45 T;H23/25 Rep1;H61 H33 Rep3;H62 N;H50-53
E: Athugasemdin á við um efni sem flokkast sem krabbameinsvaldandi, stökkbreytivaldandi eða hafa skaðleg áhrif á æxlun, flokkur 1 eða flokkur 2, og sem einnig eru flokkuð sem mjög eitruð (Tx), eitruð (T) eða hættuleg heilsu (Xn). Fyrir efni sem fá athugasemd E bætist orðið ,,einnig" við setningar H20, H21, H22, H23, H24, H25, H26, H27, H28, H39, H48, H65 og H68, og samtengingar þeirra, t.d. H45-23 ,,Getur valdið krabbameini. Einnig eitrað við innöndun", H46-27/28 ,,Getur valdið arfgengum skaða. Einnig mjög eitrað í snertingu við húð og við inntöku".



IV. VIÐAUKI
Efni með eftirtalin raðnúmer falla út af lista 1:
601-050-00-1 benzen, C10-13-alkýlafleiður
609-017-00-3 dínítrófenól, sölt
613-006-00-9 parakvat; 1,1'-dímetýl-4,4'-bípýridíníum


V. VI ÐAUKI
Flokkun á efnum á lista 1 með eftirtalin raðnúmer breytist með tilliti til þeirrar breytingar sem verður á hættusetningu H40 og tilkomu nýrrar hættusetningar H68:
006-005-00-4
006-012-00-2
015-015-00-8
015-022-00-6
015-048-00-8
015-072-00-9
016-023-00-4
023-001-00-8
024-012-00-0
048-003-00-6
048-004-00-1
048-005-00-7
048-007-00-8
601-048-00-0
602-002-00-2
602-025-00-8
602-079-00-2
603-001-00-X
603-029-00-2
603-056-00-X
603-063-00-8
603-066-00-4
604-005-00-4
604-009-00-6
604-042-00-6
604-055-00-7
605-016-00-7
605-020-00-9
609-007-00-9
609-020-00-X
609-049-00-8
611-001-00-6
612-033-00-3
612-035-00-4
612-051-00-1
612-111-00-7
612-128-00-X
612-145-00-2
612-146-00-8
612-147-00-3
612-148-00-9
613-140-00-8
613-048-00-8
613-049-00-3
615-023-00-7

VI. VIÐAUKI
Fylgiskjal 5
I. Áhrif á heilsu.
A. Hrein efni.
1.2.3.a Hættulegt heilsu.
Efni flokkast sem hættulegt heilsu og fær varnaðarmerkið HÆTTULEGT HEILSU (Xn) ásamt neðangreindri hættusetningu á grundvelli eftirfarandi:
H68 Getur valdið varanlegu heilsutjóni
Yfirleitt er miðað við forsendur gefnar í tl. 1.1.3.a.
Tilgreina skal íkomuleið efnis með samtengdu hættusetningunum:
H68/20, H68/21, H68/22, H68/20/21, H68/20/22, H68/21/22 eða H68/20/21/22.
1.7.1.2.a Efni sem geta valdið krabbameini, flokkur 3.
Krabbameinsvaldandi efni, flokkur 3 (Carc3):
Efni sem er varhugavert fyrir menn þar sem það gæti hugsanlega valdið krabbameini. Ekki liggja þó fyrir nægilegar upplýsingar til að viðunandi mat á áhrifum efnis geti farið fram. Dýrarannsóknir gefa vísbendingu um slíkt, en upplýsingarnar eru ekki nægilegar til að skipa efni í flokk 2 (Carc2).
Krabbameinsvaldandi efni sem fellur í flokk 3 fær varnaðarmerkið HÆTTULEGT
HEILSU (Xn) ásamt neðangreindri hættusetningu:
H40 Getur hugsanlega valdið krabbameini
1.7.2.2.a Efni sem geta valdið stökkbreytingum, flokkur 3.
Efni sem veldur stökkbreytingum, flokkur 3 (Mut3):
Efni sem er varhugavert fyrir menn þar sem það gæti hugsanlega valdið stökkbreytingum. Rannsóknir gefa vísbendingu um slíkt, en upplýsingarnar eru ekki nægilegar til að skipa efni í flokk 2.
Efni sem getur valdið stökkbreytingum og fellur í flokk 3 fær varnaðarmerkið HÆTTULEGT HEILSU (Xn) ásamt neðangreindri hættusetningu:
H68 Getur valdið varanlegu heilsutjóni
B. Samsettar efnavörur – reikniaðferðir.
Flokkun samsettrar efnavöru er háð styrk og flokkun einstakra efnisþátta. Við mat á skaðsemi vöru skal taka tillit til allra innihaldsefna, sem hafa áhrif á heilsu og flokkast sem eiturefni eða hættuleg efni, sbr. A-hluta, jafnvel þó þau séu aðeins til staðar sem óhreinindi eða aukefni.
Ekki þarf að taka tillit til innihaldsefna sem eru í minna magni en hér segir, nema að lægri mörk séu sett fyrir viðkomandi efni í fylgiskjali 1, lista yfir eiturefni og hættuleg efni:
Hættuflokkun efnis: Styrkur:
Sterkt eitur (Tx) 0,1%
Eitur (T) 0,1%
Hættulegt heilsu (Xn) 1%
Ætandi (C) 1%
Ertandi (Xi) 1%
Styrkur efna reiknast sem hlutfall af þyngd nema fyrir loftkennd efni þar sem notað er rúmmálshlutfall. Taka skal tillit til þess þegar við á að í efnablöndu geta efni ýmist aukið eða dregið úr skaðlegum áhrifum hvers annars. Þetta gildir jafnt þó efnið sem veldur áhrifunum flokkist ekki sem hættulegt.

Styrkmörk fyrir flokkun efnavöru eru birt í viðeigandi töflum. Líta skal bæði til hættu flokks og hættusetninga.

Yfirlit yfir töflur í þessum kafla:
Tafla 1: Bráð eiturhrif; Tx (H26, H27, H28), T (H23, H24, H25), Xn (H20, H21, H22)
Tafla 2: Varanlegur skaði eftir notkun einu sinni; Tx (H39), T (H39), Xn (H68)
Tafla 3: Alvarlegt heilsutjón eftir endurtekna eða langvarandi notkun; T (H48), Xn (H48)
Tafla 4: Ætandi og ertandi efni; C (H35, H34), Xi (H36, H37, H38, H41)
Tafla 5: Ofnæmisvaldandi efni; Xn (H42), Xi (H43)
Tafla 6: Krabbameinsvaldandi efni, stökkbreytandi verkun og skaðleg áhrif á æxlun; T
(H45, H46, H49, H60, H61), Xn (H40, H62, H63)
Töflur 7 – 12: Loftkenndar efnablöndur

Ef einungis eitt hættulegt efni er í vörunni er hægt að finna flokkun hennar í töflunum á grundvelli hættuflokkunar efnis (sbr. fylgiskjal 1) og út frá styrk efnis. Ef tiltekin eru sérstök styrkmörk í fylgiskjali 1 skal nota þau í stað styrkmarka í töflunum. Hugsanlegt er að efni flokkist skv. fleiri en einni af framangreindum töflum.

Þegar fleiri en eitt hættulegt efni eru í vörunni á eftirfarandi við:

a) Fyrir efni sem hafa bráð eiturhrif og fyrir ertandi og ætandi efni þarf að nota reikniaðferðir sem lýst er hér á eftir til að ákvarða hættuflokkun vörunnar. Sem dæmi geta eiturefni lagt til flokkunar vöru sem HÆTTULEG HEILSU og ætandi efni geta lagt til flokkunar vöru sem ERTANDI.
b) Fyrir efni sem tiltekin eru í töflu 2 - 3 og 5 - 6 er hvert efni skoðað sérstaklega og hættuflokkun vörunnar fundin með aðstoð viðkomandi töflu.

1.2.b Varanlegur skaði eftir notkun í eitt skipti.
Skoða skal efnavörur sem í eru efni flokkuð með hættusetningu H39 eða H68 með tilliti til varanlegs skaða eftir notkun í eitt skipti, sbr. tl. 1.2.a. Hvert efni skoðast sérstaklega. Tilgreina skal íkomuleið með samtengdum hættusetningum í samræmi við flokkun efnis í fylgiskjali 1. Nota skal styrkmörk sem gefin eru í töflu 2 ef ekki eru tiltekin sérstök styrkmörk í fylgiskjali 1.

Tafla 2.

Flokkun efnavöru vegna varanlegs skaða eftir notkun í eitt skipti.

Styrkur efnis í efnavöru
Hættuflokkun efnis
Tx (H39)
T (H39)
Xn (H68)
0% < styrkur < 0,1%
0,1% =styrkur < 1%
Xn (H68)
1% =styrkur < 10%
T (H39)
Xn (H68)
styrkur =10%
Tx (H39)
T (H39)
Xn (H68)

1.6.b Krabbameinsvaldandi efni, stökkbreytandi verkun og skaðleg áhrif á æxlun.
Við flokkun vöru sem í eru efni sem flokkast sem krabbameinsvaldandi, efni sem geta valdið stökkbreytingum eða hafa skaðleg áhrif á æxlun, sbr. tl. 1.7.a, skal nota styrkmörk í töflu 6. Hvert efni er skoðað sérstaklega og sérhver áhrif skoðuð fyrir sig. Fyrir einstaka efni eru tiltekin sérstök styrkmörk í fylgiskjali 1.

Tafla 6.

Flokkun efnavöru með innihaldsefni sem flokkuð eru sem krabbameins valdandi, stökkbreytivaldandi eða efni sem hafa skaðleg áhrif á æxlun.

Flokkun efnis
Styrkur efnis í
efnavöru
Krabbameinsvaldandi, flokkur Carc1 og Carc2 (T með H45 eða H49)
styrkur =0,1%
Krabbameinsvaldandi, flokkur Carc3 (Xn með H40)
styrkur =1%
Efni sem valda stökkbreytingum, flokkur Mut1 og Mut2 (T með H46)
styrkur =0,1%
Efni sem valda stökkbreytingum, flokkur Mut3 (Xn með H68)
styrkur =1%
Skaðleg áhrif á æxlun, flokkur Rep1 og Rep2 (T með H60 og/eða H61)
styrkur =0,5%
Skaðleg áhrif á æxlun, flokkur Rep3 (Xn með H62 og/eða H63)
styrkur =5%

1.8.2.b Varanlegur skaði eftir notkun í eitt skipti.
Í stað töflu 2 gildir tafla 8.

Tafla 8.

Flokkun loftkenndrar efnablöndu vegna varanlegs skaða eftir notkun í eitt skipti.

Styrkur efnis
í efnablöndu
Hættuflokkun efnis
Tx (H39)
T (H39)
Xn (H68)
0% =styrkur < 0,02%
0,02% =styrkur < 0,2%
Xn (H68)
0,2% =styrkur < 0,5%
T (H39)
0,5% =styrkur < 1%
Xn (H68)
1% =styrkur < 5%
Tx (H39)
styrkur =5%
T (H39)
Xn (H68)

1.8.6.b Krabbameinsvaldandi efni, stökkbreytandi verkun og skaðleg áhrif á æxlun.
Í stað töflu 6 gildir tafla 12.

Tafla 12.

Flokkun loftkenndrar efnablöndu með innihaldsefni sem flokkuð eru sem krabbameinsvaldandi, stökkbreytivaldandi eða efni sem hafa skaðleg áhrif á æxlun.

Flokkun efnis
Styrkur efnis í
efnablöndu
Krabbameinsvaldandi, flokkur Carc1 og Carc2 (T með H45 eða H49)
styrkur =0,1%
Krabbameinsvaldandi, flokkur Carc3 ( Xn með H40)
styrkur =1%
Efni sem valda stökkbreytingum, flokkur Mut1 og Mut2 (T með H46)
styrkur =0,1%
Efni sem valda stökkbreytingum, flokkur Mut3 (Xn með H68)
styrkur =1%
Skaðleg áhrif á æxlun, flokkur Rep1 og Rep2 (T með H60 og/eða H61)
styrkur =0,2%
Skaðleg áhrif á æxlun, flokkur Rep3 (Xn með H62 og/eða H63)
styrkur =1%

Þetta vefsvæði byggir á Eplica