Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

572/2018

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 732/2014 um kröfur um bil milli talrása í samevrópska loftrýminu.

1. gr.

Við 3. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi liður:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2160 frá 20. nóvember 2017 um breytingu á framkvæmdarreglugerð Evrópusambandsins (ESB) nr. 1079/2012 að því er varðar tilteknar tilvísanir í ákvæði Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 96/2018 frá 27. apríl 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 33 frá 17. maí 2018, bls. 224.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 5. mgr. 75. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 31. maí 2018.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Gunnar Örn Indriðason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.