Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

567/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 616/2017 um rannsóknir og forvarnir gegn sjóslysum og sjóatvikum.

1. gr.

Á eftir 1. mgr. 15. gr. koma tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:

Rannsóknarnefndin skal leitast við að tryggja að þeir aðilar, sem tillögu í öryggisátt er beint til, staðfesti móttöku hennar. Þegar tillögu í öryggisátt er svarað skal, eftir því sem við á, veita upplýsingar um hvernig og hvenær brugðist verði við henni. Rannsóknarnefndin skal fylgja svörum þeirra, sem tillögu er beint til, eftir þangað til hún ákveður að loka tillögu.

Rannsóknarnefndin getur að endingu lokað tillögu í öryggisátt með eftirfarandi hætti:

  1. Fullnægjandi viðbrögð.
  2. Viðbrögð fullnægjandi að hluta.
  3. Ófullnægjandi viðbrögð.
  4. Tillögu í öryggisátt ósvarað.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. 40. gr. laga um rannsókn samgönguslysa, nr. 18/2013, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 27. apríl 2022.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.