Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

557/2019

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1240/2015 um framkvæmd áreiðanleikakannana vegna upplýsingaöflunar á sviði skattamála.

1. gr.

Á eftir orðinu "skilgreininguna í" í 2. mgr. 6. tölul. 2. gr. reglugerðarinnar kemur: d-g-lið.

2. gr.

38. tölul. 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Tilkynningarskylt lögsagnarumdæmi: lögsagnarumdæmi sem samkvæmt gildandi samningi skuldbindur sig til að veita þær upplýsingar sem tilgreindar eru í 6. mgr. 92. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003.

3. gr.

39. tölul. 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Lögsagnarumdæmi sem er þátttakandi: lögsagnarumdæmi sem samkvæmt gildandi samningi veitir þær upplýsingar sem tilgreindar eru í 6. mgr. 92. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003.

4. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 8. mgr. 92. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, tekur þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 28. maí 2019.

F. h. r.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

Ása Ögmundsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.