Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

553/2018

Reglugerð um (12.) breytingu á reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. reglugerðarinnar:

  1. Stafliðir a-z verða að töluliðum 1-25:
  2. Við bætist nýr töluliður, svohljóðandi:

    1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2228 frá 4. desember 2017 um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 56/2018 frá 23. mars 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 29 frá 5. maí 2018, bls. 1-4.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2228 frá 4. desember 2017 um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í c-lið 7. tölulið 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 25. maí 2018.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.