Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

542/1998

Reglugerð um breytingu á reglugerð um starfshætti skráningarstofu ökutækja, nr. 79 30. janúar 1997.

1. gr.

1. gr. breytist þannig:

a. Skilgreining um skoðunarstofu orðist svo:

Skoðunarstofa: Faggilt skoðunarstofa sem fengið hefur starfsleyfi til að annast skoðun ökutækja.

b. Við bætist ný skilgreining sem orðist svo:

Endurskoðunarverkstæði: Verkstæði sem hlotið hefur starfsleyfi til að endurskoða að bætt hafi verið úr frávikum sem fram hafa komið við aðalskoðun, breytingaskoðun og skráningarskoðun.

2. gr.

2. gr. breytist þannig:

a. Á eftir 3. þankastriki komi nýtt þankastrik sem orðist svo:

- að reka tæknideild, sbr. 5. gr.,

b. 5. þankastrik (sem verður 6. þankastrik) orðist svo:

- að annast skráningu á aðilum sem hafa hlutverki og skyldum að gegna við skráningu ökutækja eða skoðun, svo sem innflytjendum ökutækja, skoðunarstofum, endurskoðunarverkstæðum og löggiltum bifreiðasölum,

3. gr.

5. gr. orðist svo:

Tæknideild skráningarstofu skal:

- veita upplýsingar um reglur er varða gerð og búnað ökutækja og skráningu þeirra,

- vera til ráðuneytis um þróun og mótun reglna um gerð og búnað ökutækja,

- annast faglega forvinnu á reglum sem varða skráningu og skoðun ökutækja,

- annast gerð og dreifingu uppfærðra skjala í Skoðunarhandbók, m.a. með tölvutækum hætti,

- reikna út frávik við framkvæmd skoðana á skoðunarstofum samkvæmt Skoðunarhandbók og dreifa þeim upplýsingum til faggildingarsviðs Löggildingarstofu, skoðunarstofa og dómsmálaráðuneytisins,

- annast eftirlit með framkvæmd skoðana hjá skoðunarstofum og endurskoðunarverkstæðum.

4. gr.

Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt 64. gr. umferðarlaga, nr. 50 30. mars 1987, öðlast þegar gildi.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 4. september 1998.

Þorsteinn Pálsson.

Ólafur W. Stefánsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.