Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 29. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 1. des. 2021

540/2006

Reglugerð um lánshlutfall og fjárhæð ÍLS-veðbréfa.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um lánshlutfall og fjárhæðir ÍLS-veðbréfa, sem gefin eru út samkvæmt lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum.

Um framkvæmd og nánari skilyrði lánveitinga Íbúðalánasjóðs gildir reglugerð um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf.

2. gr. Lánshlutfall.

Fjárhæð ÍLS-veðbréfs skv. VI. kafla reglugerðar um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf getur numið allt að 80% af matsverði íbúðar.

3. gr. Hámarksfjárhæð.

Hámarkslán Íbúðalánasjóðs bæði til kaupa á notaðri íbúð og vegna nýbygginga er 30.000.000 kr. Uppfærð áhvílandi lán Íbúðalánasjóðs og framar áhvílandi veð annarra veðhafa koma til frádráttar fyrrgreindri fjárhæð.

4. gr. Hámark lána vegna viðauka og til endurbóta.

Lán skv. VII. kafla reglugerðar um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf, ásamt öllum uppfærðum lánum sem á undan hvíla, skal rúmast innan 80% af matsverði viðkomandi íbúðar.

Fjárhæð láns samkvæmt þessari grein og uppreiknaðra áhvílandi lána Íbúðalánasjóðs, má samanlagt ekki nema hærri fjárhæð en 30.000.000 kr. Aukalán til einstaklinga með sérþarfir skerða ekki þetta hámark.

Útgefið ÍLS-veðbréf samkvæmt þessari grein skal að lágmarki nema 400.000 kr.

5. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 2. mgr. 19. gr. og 29. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. júlí 2006. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um lánshlutfall og hámarksfjárhæð ÍLS-veðbréfa, nr. 959/2004, með síðari breytingum. Um hámarkslán og lánshlutfall skal þó fara samkvæmt eldri reglugerð við afgreiðslu lánsumsókna sem berast Íbúðalánasjóði fyrir 1. júlí nk.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.