Fara beint í efnið

Prentað þann 29. apríl 2024

Breytingareglugerð

538/2023

Reglugerð um (13.) breytingu á reglugerð nr. 674/2017 um heilbrigðisreglur að því er varðar aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir sem ekki eru ætlaðar til manneldis.

1. gr.

Í stað 3.-5. gr. reglugerðarinnar kemur eftirfarandi:

3. gr. Lögbær yfirvöld.

Matvælastofnun gegnir hlutverki lögbærs yfirvalds í reglugerðum skv. 1. gr.

4. gr. Samþykki fyrir fyrirtækjum eða stöðvum.

Fyrirtæki eða stöðvar, sbr. 24. gr. reglugerðar (EB) nr. 1069/2009, sbr. 1. gr., skulu hafa viðeigandi leyfi stjórnvalda samkvæmt lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, og/eða lögum nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, og reglugerðum settum samkvæmt þeim.

Þeim sem veita starfsleyfi samkvæmt lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, og nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, skulu tilkynna til Matvælastofnunar ef fyrirtæki eða stöð sinnir starfsemi sem fellur undir ákvæði reglugerðar (EB) nr. 1069/2009, sbr. 1. gr.

5. gr. Eftirlit.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerða skv. 1. gr. sé framfylgt.

2. gr.

Í stað 8.-9. gr. reglugerðarinnar kemur eftirfarandi:

8. gr. Þvingunarúrræði og viðurlög.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt ákvæðum VII. kafla laga nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, og VI. kafla laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

9. gr. Lagastoð.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 13. og 29. gr. a laga nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, og 7. gr. laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

3. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 13. og 29. gr. a laga nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, og 7. gr. laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 31. maí 2023.

Svandís Svavarsdóttir.

Margrét Björk Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.