Fara beint í efnið

Prentað þann 1. maí 2024

Stofnreglugerð

536/2023

Reglugerð um gjöld fyrir einkaleyfi, vörumerki, hönnun o.fl.

I. KAFLI Gildissvið.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um gjöld fyrir þjónustu Hugverkastofunnar í tengslum við réttindi sem veitt eru á grundvelli laga nr. 17/1991 um einkaleyfi (ell.), nr. 45/1997 um vörumerki (vml.) og nr. 46/2001 um hönnun (hl.).

Gjöld greiðast Hugverkastofunni nema annað sé tekið fram.

Gjöld samkvæmt reglugerð þessari eru ekki endurgreidd nema um sé að ræða ofgreidd gjöld eða árgjöld sem falla til eftir beiðni um endurveitingu réttinda, verði slíkri beiðni endanlega synjað.

II. KAFLI Einkaleyfi.

2. gr. Einkaleyfisumsóknir.

Fyrir umsóknir um einkaleyfi skal greiða þegar við á:

kr.
1. Gjald fyrir umsókn um einkaleyfi, yfirfærða alþjóðlega einkaleyfisumsókn eða beiðni um endurmat skv. 38. gr. ell.:
a. umsóknargjald 76.000
b. viðbótargjald fyrir hverja einkaleyfiskröfu umfram tíu 4.900
2. Gjald skv. 36. og 37. gr. ell. 64.900
3. Viðbótargjald vegna viðbótarfrests til að leggja inn tilskilda þýðingu vegna yfirfærðrar umsóknar 20.500
4. Umsýslugjald fyrir milligöngu við nýnæmisrannsókn hjá alþjóðlega viðurkenndri stofnun 8.900

Fyrir hlutun eða úrfellingu skal greiða umsóknargjald skv. 1. tl. 1. mgr. auk árgjalda skv. 3. gr. í samræmi við 2. mgr. 41. gr. ell.

3. gr. Árgjöld.

Árgjöld fyrir einkaleyfisumsóknir og einkaleyfi eru sem hér segir:

Gjaldár kr. Gjaldár kr. Gjaldár kr.
1. 13.000 8. 21.800 15. 45.300
2. 13.000 9. 24.400 16. 50.000
3. 13.000 10. 27.200 17. 56.200
4. 15.000 11. 29.700 18. 61.700
5. 16.400 12. 32.400 19. 67.600
6. 17.700 13. 35.800 20. 74.400
7. 19.700 14. 40.500

Árgjald, sem greitt er innan sex mánaða frá gjalddaga skal hækka um 20%.

4. gr. Útgáfa einkaleyfis.

Fyrir útgáfu einkaleyfis skal greiða þegar við á:

kr.
1. Útgáfugjald fyrir fyrstu 40 blaðsíður einkaleyfisskjals (lýsing, einkaleyfiskröfur, teikningar og ágrip) 32.400
2. Viðbótargjald fyrir hverja síðu umfram 40 1.500
3. Viðbótargjald fyrir hverja einkaleyfiskröfu sem bætt er við eftir innlögn umsóknar 4.900
4. Gjald fyrir endurútgáfu einkaleyfis 32.400
5. Gjald fyrir leiðréttingu á kröfum einkaleyfis og endurútgáfu 32.400

5. gr. Evrópsk einkaleyfi.

Fyrir evrópsk einkaleyfi, svo sem staðfestingu einkaleyfis, endurútgáfu eða fyrir útgáfu leiðréttrar þýðingar greiðast kr. 36.700

6. gr. Viðbótarvottorð.

Vegna umsóknar um viðbótarvernd og útgáfu viðbótarvottorðs skal greiða eftir því sem við á:

kr.
1. Umsóknargjald 76.000
2. Gjald fyrir framlengingu á viðbótarvottorði 56.200
3. Árgjald fyrir hvert byrjað gjaldár viðbótarvottorðs 74.400
4. Gjald fyrir meðhöndlun tilkynningar um nýtta undanþágu frá viðbótarvernd 8.200

Árgjald skv. 3. tl. 1. mgr., sem greitt er innan sex mánaða frá gjalddaga, hækkar um 20%.

7. gr. Takmörkun á verndarsviði.

Gjald fyrir beiðni um takmörkun á verndarsviði einkaleyfis kr. 32.400

8. gr. Andmæli.

Tilkynning um andmæli gegn einkaleyfi kr. 48.900

9. gr. Samtalsleit einkaleyfa.

Þjónusta við forskoðun á nýnæmi og einkaleyfishæfi uppfinningar kr. 32.800

III. KAFLI Vörumerki, félagamerki og ábyrgðar- og gæðamerki.

10. gr. Umsókn eða endurnýjun merkis.

Fyrir umsókn um skráningu merkis eða endurnýjun þess skal greiða eftirtalin gjöld þegar við á:

kr.
1. Umsóknar- eða endurnýjunargjald, einn vöru- eða þjónustuflokkur innifalinn 37.900
2. Viðbótargjald fyrir hvern vöru- og/eða þjónustuflokk umfram einn 8.200

Gjöld fyrir tilnefningu á Íslandi í umsókn um alþjóðlega skráningu vörumerkis eða vegna endurnýjunar þeirra eru greidd til Alþjóðahugverkastofnunarinnar (WIPO).

11. gr. Breyting á merki, reglum eða beiðni um hlutun.

Beiðni um breytingu samkvæmt 1. eða 2. mgr. 24. gr. vml. kr. 8.200
Beiðni um hlutun umsóknar eða skráningar kr. 24.400

12. gr. Andmæli og afnám skráningar.

Tilkynning um andmæli eða krafa um að skráning merkis verði felld niður eða felld úr gildi kr. 48.700

13. gr. Samanburðarleit fyrir vörumerki.

Leit í vörumerkjaskrá að sambærilegu merki kr. 7.000

Útheimti beiðni um leit skv. 1. mgr. verulega úrvinnslu gagna eða leit í skjalasafni reiknast að auki tímagjald samkvæmt 20. gr. eftir því sem við á.

IV. KAFLI Hönnun.

14. gr. Umsókn um skráningu eða endurnýjun hönnunar.

Fyrir umsókn um skráningu hönnunar skal greiða eftir því sem við á:

kr.
1. Umsóknargjald fyrir hvert fimm ára tímabil 20.300
2. Umsóknargjald fyrir hverja hönnun umfram eina í samskráningu fyrir hvert fimm ára tímabil 8.900
3. Gjald fyrir hverja mynd umfram eina 4.900
4. Rannsóknargjald 13.000

Ef óskað er eftir því við innlagningu umsóknar að skráning hönnunar gildi í fleiri en eitt tímabil í senn skal greiða umsóknargjald fyrir hvert tímabil sem skráningunni er ætlað að ná yfir.

Fyrir endurnýjun á skráningu hönnunar skal greiða eftir því sem við á:

kr.
1. Endurnýjunargjald fyrir hvert fimm ára tímabil 25.700
2. Endurnýjunargjald fyrir hverja hönnun umfram eina í samskráningu fyrir hvert fimm ára tímabil 8.100

15. gr. Brottfall skráningar.

Gjald vegna kröfu um að skráning verði felld úr gildi kr. 15.000

V. KAFLI Ýmis ákvæði.

16. gr. Umsýsla alþjóðlegra umsókna.

Umsýslugjald fyrir móttöku og meðhöndlun alþjóðlegrar einkaleyfis-, vörumerkja- eða hönnunarumsóknar kr. 20.300

17. gr. Endurupptaka og endurveiting réttinda.

Gjald fyrir beiðni um endurupptöku kr. 13.000
Gjald fyrir beiðni um endurveitingu réttinda til einkaleyfis eða hönnunar kr. 48.700

18. gr. Innfærsla í málaskrá.

Gjald fyrir beiðni um innfærslu upplýsinga um aðilaskipti, nytjaleyfi eða veðsetningu kr. 8.200
Gjald fyrir beiðni um aðrar innfærslur í málaskrá, s.s. breyting á nafni eða heimilisfangi umsækjanda/eiganda, breyting á tegund merkis, tilgreiningu vöru og/eða þjónustu eða breytingar varðandi umboðsmann kr. 4.200

19. gr. Afrit af gögnum í málaskrá.

Fyrir afrit af aðgengilegum gögnum úr málaskrá skal greiða eftir því sem við á:

kr.
1. Rafrænt afrit af umsókn eða af veittu einkaleyfi, skráðu merki eða hönnun eða öðrum skjölum úr skjalavistunarkerfi 1.500
2. Staðfest afrit af skjölum skv. 1. tl. eða útgáfa forgangsréttarskjals 5.400
3. Útprentun eða ljósritun gagna, hver síða í stærðinni A4 400

Ef beiðni um afrit skv. 1. mgr. útheimtir verulega úrvinnslu gagna eða leit í skjalasafni reiknast að auki tímagjald samkvæmt 20. gr. eftir því sem við á.

20. gr. Þjónustuverkefni.

Fyrir þjónustu, sem verður ekki heimfærð undir einingarverð reglugerðarinnar, svo sem umfangsmikla leit, athuganir, úrvinnslu eða tölvuútskriftir, greiðist tímagjald kr. 8.200

21. gr. Áfrýjun.

Gjald vegna áfrýjunar á grundvelli laga um einkaleyfi, vörumerki, hönnun eða félagamerki kr. 85.000

Áfrýjunargjald greiðist ráðuneytinu við afhendingu bréfs um áfrýjun.

Sé mál afturkallað áður en áfrýjunarnefnd er fullskipuð, málinu vísað frá áfrýjunarnefnd eða það vinnst skal ráðuneytið endurgreiða 65.000 kr.

VI. KAFLI Lokaákvæði.

22. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett skv. heimild í 68. gr. laga nr. 17/1991 um einkaleyfi, 63. gr. laga nr. 45/1997 um vörumerki, 36. gr. og 53. gr. laga nr. 46/2001 um hönnun.

Reglugerð þessi öðlast gildi 1. júlí 2023.

Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 1050/2020.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu,16. maí 2023.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Sigríður Valgeirsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.