Samgönguráðuneyti

534/2008

Reglugerð um breytingu á reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna húsaleigubóta, nr. 122/2003 með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða er hljóðar svo:

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 2. gr., er kveður á um heildarframlög Jöfnunarsjóðs sveitar­félaga vegna húsaleigubóta, mun ríkissjóður Íslands með vísan til samkomulags hans og Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 7. apríl 2008, greiða 60% af þeim heildar­kostnaði sem leiða mun af hækkun húsaleigubóta og greiðslu sérstakra húsaleigu­bóta á grundvelli samkomulagsins.

Ákvæðið gildir til 31. mars 2010.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett á grundvelli 18. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Samgönguráðuneytinu, 3. júní 2008.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica