Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Breytingareglugerð

527/2021

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 1014/2020 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/466 um tímabundnar ráðstafanir til að halda í skefjum áhættu fyrir heilbrigði manna og dýra og plöntuheilbrigði og velferð dýra við tiltekna alvarlega röskun á eftirlitskerfum aðildarríkjanna vegna kórónaveirufaraldursins (COVID-19).

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 5. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/83 frá 27. janúar 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/466 að því er varðar framkvæmd einstaklinga, sem hafa til þess sérstaka heimild, á opinberu eftirliti og annarri opinberri starfsemi og gildistíma tímabundinna ráðstafana. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 88/2021, frá 3. mars 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26, frá 8. apríl 2021, bls. 102.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995, um matvæli og lög nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli og 9. gr. og 9. gr. a - 9. gr. e laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. apríl 2021.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.