Fara beint í efnið

Prentað þann 19. mars 2024

Stofnreglugerð

526/2001

Reglugerð um bann við aðgerðum á hundum og köttum sem framkvæmdar eru án læknisfræðilegra ástæðna.

1. gr.

Eftirtaldar aðgerðir á hundum og köttum sem ekki eru gerðar í læknisfræðilegum tilgangi heldur til að breyta útliti þeirra eða eiginleikum eru bannaðar:

  1. Eyrnastífing hunda.
  2. Skottstýfing hunda.
  3. Brottnám raddbanda hunda og katta.
  4. Brottnám á klóm katta.
  5. Brottnám á sporum hunda.
  6. Tannúrdráttur hjá hvolpum og kettlingum.

2. gr.

Reynist nauðsynlegt að gera aðgerðir á skotti hunds, í læknisfræðilegum tilgangi, skal aðeins fjarlægja þann hluta skottsins sem nauðsynlegt er til að bati náist.

3. gr.

Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga nr. 15/1994, um dýravernd, öðlast þegar gildi.

Umhverfisráðuneytinu, 22. júní 2001.

F. h. r.
Magnús Jóhannesson.

Sigrún Ágústsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.