Fara beint í efnið

Prentað þann 16. apríl 2024

Breytingareglugerð

525/2022

Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 580/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429.

1. gr.

Við reglugerðina bætast þrír nýir töluliðir, 19., 20 og 21. tl, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/416 frá 11. mars 2022 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/441 frá 17. mars 2022 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/424 frá 14. mars 2022 um breytingu og leiðréttingu á I., IV., XV., XVI., XVII. og XXI. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði eða hólf þeirra sem hafa heimild til að flytja inn dýr af hestaætt, kjötafurðir, mjólk, brodd, afurðir, að stofni til úr broddi, og mjólkurafurðir, garnir og lagardýr til Sambandsins.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerðir framkvæmdastjórnarinnar sem nefndar eru í 1. gr. eru birtar sem fylgiskjöl 1-3 við þessa reglugerð.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lögum nr. 71/2008, um fiskeldi, öll með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 25. apríl 2022.

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.