Fara beint í efnið

Prentað þann 27. apríl 2024

Breytingareglugerð

522/2023

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 179/2021, um kröfur varðandi losunarmörk mengandi lofttegunda og efnisagna og gerðarviðurkenningu brunahreyfla fyrir færanlegan vélbúnað til nota utan vega.

1. gr.

Við 7. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir stafliðir, sem verða j-liður og k-liður, svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2387 frá 30. ágúst 2022 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2017/655 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/1628 að því er varðar aðlögun ákvæða um vöktun á losun mengandi lofttegunda frá brunahreyflum sem eru í notkun og eru uppsettir í færanlegum vélbúnaði til nota utan vega þannig að þau taki til hreyfla með afl sem er minna en 56 kW og meira en 560 kW. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 37, frá 11. maí 2023, bls. 543-579.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/992 frá 8. júní 2022 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/1628 að því er varðar rýmkun valdheimildar framkvæmdastjórnarinnar til að samþykkja framseldar gerðir. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 40, frá 25. maí 2023, bls. 281-282.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 3. gr., 34., 35., 38. og 47. gr. laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, og að fenginni umsögn stjórnar Vinnueftirlits ríkisins, öðlast þegar gildi.

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 26. maí 2023.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Bjarnheiður Gautadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.