Fara beint í efnið

Prentað þann 29. apríl 2024

Breytingareglugerð

516/2023

Reglugerð um (20.) breytingu á reglugerð nr. 888/2015 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH).

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/586 frá 8. apríl 2022 um breytingu á XIV. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)), sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 308/2022, þann 9. desember 2022. Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8 frá 26. janúar 2023, bls. 195-199.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/477 frá 24. mars 2022 um breytingu á VI. til X. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)), sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 9/2023 frá 3. febrúar 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20 frá 9. mars 2023, bls. 314-329.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/586 frá 8. apríl 2022 um breytingu á XIV. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)).
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/477 frá 24. mars 2022 um breytingu á VI. til X. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)).

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 26. maí 2023.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Stefán Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.