Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

515/2017

Reglugerð um breytingu á reglugerð um flugvernd nr. 750/2016.

1. gr.

Við 53. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi liður:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2096 frá 30. nóvember 2016 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1254/2009 að því er varðar tilteknar viðmiðanir sem gera aðildarríkjunum kleift að veita undanþágur frá sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd í almenningsflugi og að samþykkja annars konar verndarráðstafanir, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES‑nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka EES-samningsins, nr. 63/2017 frá 17. mars 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 31 frá 18. maí 2017, bls. 110.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 70. gr. d, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 24. maí 2017.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.