Utanríkisráðuneyti

506/2016

Reglugerð um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Íran nr. 384/2014, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Íran nr. 384/2014 í réttri númeraröð:

  1.7 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/565 frá 11. apríl 2016 um breytingu á ákvörðun 2011/235/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum aðilum og rekstrareiningum í ljósi ástandsins í Íran, fylgiskjal 1.7.
  2.7 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2016/556 frá 11. apríl 2016 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 359/2011 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Íran, fylgiskjal 2.7.
  3.29 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/78 frá 22. janúar 2016 um framkvæmd ákvörðunar 2010/413/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Íran, fylgiskjal 3.29.
  4.27 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2016/74 frá 22. janúar 2016 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 267/2012 um þvingunaraðgerðir gegn Íran, fylgiskjal 4.27.

Ákvæði liðar 3.28 í 2. gr. breytist svo: Í stað orðanna "frá 14. janúar 2016" komi: frá 16. janúar 2016.

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 29. apríl 2016.

Lilja Alfreðsdóttir.

Stefán Haukur Jóhannesson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica