Fara beint í efnið

Prentað þann 9. maí 2024

Breytingareglugerð

501/2023

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 905/2021 um uppbætur og styrki til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða.

1. gr.

Á eftir 2. mgr. 13. gr. reglugerðarinnar kemur ný málsgrein, svohljóðandi:

Ef fyrir liggur samningur um skipta búsetu barns, sbr. 3. mgr. 32. gr. barnalaga, nr. 76/2003, og barnið er hreyfihamlað og nýtur umönnunargreiðslna er heimilt að skipta uppbót eða styrk til kaupa á bifreið jafnt milli foreldra, ef önnur skilyrði reglugerðar þessarar eru uppfyllt.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 10. gr., sbr. 2. mgr. 14. gr., laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, og 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi og gildir um umsóknir sem berast frá 1. janúar 2022.

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 8. maí 2023.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Jóna Guðný Eyjólfsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.