Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

492/2015

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð um menntun, réttindi og skyldur sálfræðinga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi nr. 1130/2012.

1. gr.

1. málsl. 1. mgr. 3. gr. orðast svo:

Leyfi skv. 2. gr. má veita þeim sem lokið hafa BS-prófi í sálfræði frá sálfræðideild heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands, BSc-prófi í sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík eða BA-prófi frá félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri, auk þess að ljúka tveggja ára framhaldsnámi (cand.psych. námi) frá sálfræðideild heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Ísland eða tveggja ára MSc námi í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða:

1. mgr. orðast svo:

Um þá sem ljúka framhaldsnámi, skv. 1. málsl. 1. mgr. 3. gr. fyrir 1. júlí 2017, gildir ekki ákvæði 2. málsl. 1. mgr. 3. gr.

1. málsl. 2. mgr. orðast svo:

Sálfræðingi sem fyrir gildistöku reglugerðar nr. 1130/2012 hóf sérnám samkvæmt reglugerð um sérfræðileyfi sálfræðinga nr. 158/1990 er heimilt að haga sérnámi sínu í samræmi við ákvæði hennar til 1. janúar 2018.

3. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5., 8., 30. og 31. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, öðlast þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 11. maí 2015.

Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra.

Vilborg Ingólfsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.