Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

486/2018

Reglugerð um breytingu á reglugerð um mælitæki, nr. 876/2016.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 18. gr. reglugerðarinnar:

  1. 1. mgr. orðast svo:
    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið tilkynnir til Eftirlitsstofnunar EFTA og framkvæmdastjórnar ESB um þá aðila sem hafa leyfi til að leysa af hendi samræmismatsverkefni í samræmi við reglugerð þessa að fenginni umsókn frá samræmismatsaðila sem uppfyllir kröfur sem gerðar eru samkvæmt ákvæðum þessarar reglugerðar, laga nr. 91/2006, reglugerða og annarra reglna settra samkvæmt þeim og ákvæðum gildandi staðla um faggildingu og starfsemi þeirra.
  2. 4., 5. og 6. mgr. orðast svo:
    Faggildingarsvið Einkaleyfastofu, eða faggildingarstofa í öðru ríki EES sem uppfyllir ákvæði reglugerðar (EB) nr. 765/2008, annast mat á hæfni og hæfi samræmismatsstofa sem óska eftir að sjá um samræmismat samkvæmt reglugerð þessari. Samræmismatsstofur skulu uppfylla þau skilyrði sem fram koma í reglugerð þessari. Faggilding útgefin af faggildingarsviði Einkaleyfastofu felur í sér mat á hæfni og hæfi samræmismatsstofu og staðfestingu á því að samræmismatsaðili uppfylli kröfur reglugerðar þessarar. Samræmismatsstofur sem uppfylla skilyrði viðeigandi samhæfðra staðla eða hluta þeirra og tilvísun í þá hefur verið birt í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins teljast ennfremur uppfylla skilyrði 20. gr.
    Faggildingarsvið Einkaleyfastofu annast mat og vöktun á hæfni og hæfi tilkynntra samræmismatsstofa sem það hefur faggilt og hvort þær uppfylli á hverjum tíma þær kröfur sem fram koma í reglugerð þessari.
    Uppfylli samræmismatsstofa ekki lengur skilyrði reglugerðar þessarar til samræmismatsstofa afturkallar faggildingarsvið Einkaleyfastofu faggildingu hennar og ber atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti þá að tilkynna Eftirlitsstofnun EFTA og framkvæmdastjórn ESB um afturköllunina án tafar.
  3. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Í ákvörðun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins um tilkynningu samræmismatsstofu skal tekið fram fyrir hvaða mælitæki og aðferðareiningar tilkynning samræmismatsstofu tekur til svo og aðrar nánari upplýsingar sem áhrif hafa á starfssvið hins tilkynnta aðila.

2. gr.

2. mgr. 21. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Með umsókn um tilkynningu skal fylgja lýsing á samræmismatsstarfseminni, aðferðareiningu eða ‑einingum samræmismats og þeim mælitækjum sem samræmismatsstofan fullyrðir að hæfi hennar nái til, ásamt afriti af faggildingarvottorði faggildingarsviðs Einkaleyfastofu, eða faggildingarstofu í öðru EES-ríki sem uppfyllir ákvæði reglugerðar (EB) nr. 765/2008, þar sem staðfest er að samræmismatsstofan uppfylli kröfur reglugerðar þessarar.

3. gr.

25. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Einungis er heimilt að tilkynna þær samræmismatsstofur sem uppfylla kröfur reglugerðar þessarar og staðfest hefur verið með faggildingu af faggildingarsviði Einkaleyfastofu, eða faggildingarstofu í öðru EES-ríki sem uppfyllir ákvæði reglugerðar (EB) nr. 765/2008.

Í tilkynningunni skulu vera ítarlegar upplýsingar um starfsemina í tengslum við samræmismatið, samræmismatsaðferðina eða -aðferðirnar og þau mælitæki sem um ræðir ásamt afriti af faggildingarvottorði þar sem staðfest er að samræmismatsstofan uppfylli kröfur reglugerðar þessarar.

Hlutaðeigandi samræmismatsstofu er einungis heimilt að annast starfsemi tilkynntrar samræmismatsstofu hreyfi Eftirlitsstofnun EFTA, framkvæmdastjórn ESB eða önnur aðildarríki Evrópska efnahagssvæðisins ekki andmælum innan tveggja mánaða frá tilkynningu. Einungis slík stofa telst tilkynnt samræmismatsstofa í skilningi reglugerðar þessarar.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið skal tilkynna Eftirlitsstofnun EFTA, framkvæmdastjórn ESB og öðrum aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins um allar síðari breytingar á tilkynningunni sem máli skipta.

4. gr.

29. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 44. gr. laga um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn, nr. 91/2006, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 11. maí 2018.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Ingvi Már Pálsson.

Heimir Skarphéðinsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.