Fara beint í efnið

Prentað þann 16. apríl 2024

Stofnreglugerð

486/2001

Reglugerð um fylgiréttargjald.

Birta efnisyfirlit

1. gr.

Við sölu myndlistarverka og listmuna á listmunauppboðum og við endursölu þeirra í atvinnuskyni ber að greiða 10% fylgiréttargjald af andvirði hins selda er falli í hlut höfundar viðkomandi listaverks eða erfingja hans að honum látnum. Réttindi þessi eru ekki framseljanleg.

Myndhöfundasjóður Íslands - Myndstef annast innheimtu fylgiréttargjalds og skil þess til höfundar eða erfingja hans eftir þeim reglum sem nánar er kveðið á um í reglugerð þessari.

Ef höfundaréttur að listaverki, sem selt er á listmunauppboði er fallinn niður sbr. 43. gr. höfundalaga nr. 73/1972, íslenska ríkið á höfundarétt að listaverki, sem selt er á listmunauppboðum eða í atvinnuskyni eða þegar fylgiréttargjaldinu verður ekki ráðstafað til höfundar eða annarra rétthafa, rennur fylgiréttargjaldið til Myndhöfundasjóðs Íslands - Myndstefs.

2. gr.

Listaverk sem falla undir gjaldskyldu skv. 6. mgr. 23. gr. laga nr. 28/1998 um verslunaratvinnu eða 25. gr. b. höfundalaga nr. 73/1972, sbr. lög nr. 57/1992 og lög nr. 60/2000 eru:
a) Öll málverk, þ.e. frumverk, sem gerð eru með olíulitum, akryllitum, tempera, vatnslitum, gouache og pastellitum svo og myndverk, sem gerð eru með annarri tækni.
b) Höggmyndir, ef um er að ræða frummynd eða merkta afsteypu í bronze, gips, terrakotta, leir, stein, marmara, tré, járn eða sérhvert annað efni.
c) Merktar og ómerktar teikningar listamanna, þ.e. blýants-, blek-, tusch-, krítar- og kolateikningar svo og annars konar teikningar og hvers konar grafísk listaverk, svo sem lithografíur, koparstungur, ætingar, raderingar, tréþrykk, svo og hvers konar önnur grafíkverk, enda séu verkin merkt af viðkomandi listamanni.
d) Myndvefnaður, textilverk, gler- og mósaikmyndir svo og leir, keramik, postulíns-, silfur- og gullverk sem teljast til listiðnaðar, enda sé um frumverk að ræða og það merkt af viðkomandi listamanni.

3. gr.

Fylgiréttargjald ber að greiða af sölu allra listaverka sem getið er um í 2. gr. hafi listaverkið verið selt á listmunauppboði eða það endurselt í atvinnuskyni með öðrum hætti, enda sé höfundur þess íslenskur ríkisborgari eða ríkisborgari eins af aðildarríkjum alþjóðlegra sáttmála um höfundarétt sem Ísland er jafnframt aðili að og veitir íslenskum höfundum sams konar réttindi í því ríki.

4. gr.

Uppboðshaldarar listmunauppboða þ.e. þeir sem að lögum hafa fengið leyfi til að halda listmunauppboð og þeir sem annast endursölu listaverka í atvinnuskyni skulu inna af hendi greiðslu fylgiréttargjalds til Myndhöfundasjóðs Íslands - Myndstefs og eru þeir ábyrgir fyrir greiðslu fylgiréttargjaldsins.

Ásamt greiðslu fylgiréttargjalds skulu þeir jafnframt skila Myndhöfundasjóði Íslands - Myndstefi skilagrein um alla sölu listaverka ásamt nafni og auðkennum verks, stærð þess ásamt öðrum upplýsingum úr uppboðsskrá svo og um höfund verksins og söluverð þess.

Fylgiréttargjaldi og skilagrein skal skila í síðasta lagi 30 dögum eftir að listamunauppboð fór fram, ef um sölu á listmunauppboði er að ræða en ársfjórðungslega ef um endursölu í atvinnskyni er að ræða.

5. gr.

Um kröfurétt höfundar á fylgiréttargjaldi eða annarra rétthafa þess fer eftir ákvæðum höfundalaga nr. 73/1972, með síðari breytingum.

Stjórn Myndhöfundasjóðs Íslands - Myndstefs er heimilt að ákveða hæfilegt endurgjald vegna innheimtu og skila á fylgiréttargjaldi, en þó aldrei hærra en 25% af því fylgiréttargjaldi sem innheimt er.

Ef ekki er unnt að hafa upp á höfundi eða öðrum rétthöfum viðkomandi fylgiréttargjalds, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir þ.m.t. auglýsingu í dagblöðum og Lögbirtingablaði, skal fylgiréttargjaldið renna til Myndhöfundasjóðs Íslands - Myndstefs, enda séu liðin þrjú ár frá lokum þess árs er endursala fór fram.

Séu erfingjar látins höfundar, sem njóta skulu fylgiréttargjalds fleiri en einn, skulu þeir koma sér saman um að veita einum þeirra umboð til þess að taka við greiðslu úr sjóðnum.

6. gr.

Um refsingu vegna brota gegn ákvæðum reglugerðar þessarar fer eftir ákvæðum höfundalaga nr. 73/1972 með síðari breytingum.

7. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 6. mgr. 23. gr. laga nr. 28/1998 um verslunaratvinnu og 25. gr. b. höfundalaga nr. 73/1972, sbr. lög nr. 57/1992 og lög nr. 60/2000 og öðlast þegar gildi. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð nr. 244/1993 um fylgiréttargjald og Myndlistarsjóð Íslands.

Menntamálaráðuneytinu, 11. júní 2001.

Björn Bjarnason.

Þórunn J. Hafstein.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.