Umhverfisráðuneyti

632/1995

Reglugerð um gjöld fyrir einkaleyfi, vörumerki , hönnun o.fl. - Brottfallin

Reglugerð

um gjöld fyrir einkaleyfi, vörumerki , hönnun o.fl.

I KAFLI

Gjöld fyrir einkaleyfi.

1. gr.

Fyrir umsóknir og meðhöndlun þeirra skal, auk árgjalda skv. 2. gr., greiða eftirtalin gjöld:

1) Umsóknargjald skv. 5. mgr. 8. gr. einkaleyfalaga (ell.) nr. 17/1991 fyrir einkaleyfisumsókn í krónum:
a) grunngjald 28.000
b) viðbótargjald fyrir hverja einkaleyfiskröfu umfram tíu 1.300

2) Grunngjald fyrir alþjóðlega einkaleyfisumsókn skv. 1. mgr. 31. gr. eða 2. mgr. 38. gr. (ell.) 28.000

3) Umsóknargjald skv. 5. mgr. 8. gr. ell. fyrir alþjóðlega umsókn, semyfirfærð er skv. 31. gr. laganna, eða fyrir einkaleyfisumsókn sem lögð er inn í samræmi við 38. gr. ell.:
a)grunngjald telst greitt hafi gjald skv. 2. tl. verið greitt,
b)viðbótargjald fyrir hverja einkaleyfiskröfu umfram tíu1.300

4) Gjald skv. 36. og 37. gr. ell. 35.000

5) Viðbótargjald vegna viðbótarfrests til að leggja inn tilskilda þýðingu eða afrit vegna yfirfærðrar umsóknar skv. 3. mgr. 31. gr. ell. 10.000

6) Endurupptökugjald skv. 3. mgr. 15. gr. eða 1. mgr. 20. gr. ell. 5.000 ef umsókn hefur áður verið endurupptekin 10.000

7) Framlagningargjald skv. 1. mgr. 20. gr. ell.:
a)grunngjald fyrir fyrstu 5 blaðsíður lýsingar með tilheyrandi einkaleyfiskröfum, teikningum og ágripi 10.000
b)viðbótargjald fyrir hverja blaðsíðu sem byrjar umfram 5 550
c)viðbótargjald fyrir hverja einkaleyfiskröfu sem bætt er við þær sem greitt var fyrir við innlagningu umsóknar 1.300

8) Rannsóknargjald fyrir umsókn sem lögð var inn fyrir 1. janúar 1992og send verður í nýnæmisrannsókn skv. viðauka I í auglýsingu nr. 575/1991 um reglur varðandi einkaleyfisumsóknir (augl. ell.) 25.000

9) Viðbótargjald fyrir umsókn sem berst með símbréfi eða hliðstæðum samskiptabúnaði 550

Gjöld skv. 2.-4. tl. 1. mgr. skulu greidd innan 20 mánaða frá alþjóðlegum umsóknardegi eða, sé forgangsréttar krafist, frá forgangsréttardegi. Ef umsækjandi hefur óskað eftir að gerð verði alþjóðleg forathugun á einkaleyfishæfi lengist áðurnefndur frestur í 30 mánuði.

Gjald skv. 5. tl. 1. mgr. skal greitt innan 2 mánaða frá því að frestum skv. 2. mgr. lýkur.

Þegar umsækjanda er tilkynnt um framlagningu umsóknar skal jafnframt geta um upphæð framlagningargjalds. Fjöldi síðna skv. 7. tl. 1. mgr. miðast við þá lýsingu ásamt einkaleyfiskröfum og teikningum sem fyrir liggja þegar umsóknin er samþykkt til framlagningar.

2. gr.

Árgjöld fyrir einkaleyfisumsóknir og einkaleyfi skv. 5. mgr. 8. gr., 40.-42. og 82. gr. ell., eru sem hér segir:

1. gjaldár2.500

2. gjaldár2.500

3. gjaldár2.500

4. gjaldár3.800

5. gjaldár3.800

6. gjaldár5.050

7. gjaldár5.050

8. gjaldár6.150

9. gjaldár6.150

10. gjaldár7.400

11. gjaldár7.400

12. gjaldár9.850

13. gjaldár9.850

14. gjaldár12.300

15. gjaldár12.300

16. gjaldár14.500

17. gjaldár16.950

18. gjaldár19.350

19. gjaldár21.800

20. gjaldár24.200

Árgjald fellur í gjalddaga síðasta dag fyrsta almanaksmánaðar í gjaldári sem miðast við umsóknardag skv. 5. mgr. 8. gr. og skv. 1. ml. 1. mgr. 41. gr. ell. Heimilt er að greiða árgjald allt að þremur mánuðum fyrir gjalddaga.

Árgjald, sem greitt er innan 6 mánaða frá gjalddaga skv. 3. mgr. 41. gr. eða 3. mgr. 42. gr. ell. skal hækka um 20%. Ef árgjald fyrir umsókn eða einkaleyfi er ekki greitt innan þessa frests verður viðkomandi umsókn afskrifuð eða viðkomandi einkaleyfi fellt úr gildi, sbr. 4. mgr. 15. gr. og 51. gr. ell.

3. gr. a

Gjöld fyrir einkaleyfi sem veitt eru í samræmi við eldri lög, skv. 76. gr. ell., á grundvelli umsókna sem lagðar hafa verið inn fyrir 1. janúar 1992, sbr. 78. gr. ell., skulu (í samræmi við gjaldafyrirkomulag sem tekur mið af hámarksgildistíma leyfis) vera sem hér segir:

a) Fyrir einkaleyfi sem getur náð allt að 15 ára gildistíma talið frá útgáfudegi:

1) fyrir 1.- 5. ár gildistímans 22.000

2) fyrir 6.- 10. ár gildistímans 52.000

3) fyrir 11.- 15. ár gildistímans 96.000

b) Fyrir einkaleyfi sem getur náð allt að 20 ára gildistíma talið frá umsóknardegi greiðast árgjöld skv. 2. gr. Númer gjaldára miðast við aldur viðkomandi umsóknar.

Við veitingu einkaleyfisins skal, innan 3 vikna frá því að umsækjanda var tilkynnt um leyfisveitinguna, greiða gjald fyrir fyrstu fimm ár gildistímans frá útgáfudegi (eða því sem næst, sbr. skýringu aftan við þessa mgr.). Að öðrum kosti fellur einkaleyfið úr gildi skv. 51. gr. ell. (Skýring varðandi útreikning á gjöldum skv. a- og b-lið 1. mgr.: Ef greiðsla árgjalda af umsókn hefur hafist skv. 2. mgr. 82. gr., sbr. 41. gr. ell., áður en einkaleyfi er veitt skal draga frá viðkomandi gjaldi þann hluta árgjalds yfirstandandi gjaldárs, sem skarast við gjald skv. a-lið 1. mgr. Umræddur hluti árgjalds skal reiknast eftir hlutfallinu: fjöldi eftirstandandi daga gjaldárs/365. Þegar gildistíminn miðast við 20 ár (b-liður 1. mgr. á við) skal greiða fyrir þau gjaldár til viðbótar yfirstandandi gjaldári þannig að greiðslutímabilið verði sem næst 5 ár talið frá útgáfudegi einkaleyfisins.)

Gjalddagi vegna 2. og 3. gildistímabils, sbr. a-lið 1. mgr., er sá almanaksdagur í upphafi hvors tímabils sem svarar til útgáfudags einkaleyfisins. Gjalddagi síðari árgjalda sbr. b-lið 1. mgr., er síðasti dagur fyrsta almanaksmánaðar í gjaldári. Frestur til að greiða þessi gjöld er 6 mánuðir og sé hann nýttur hækka gjöldin um 20%. Einnig er heimilt að greiða þessi gjöld allt að þremur mánuðum fyrir gjalddaga.

3. gr. b

Upphæð árgjalds, sem gjaldfellur í fyrsta sinn, af einkaleyfi sem veitt hefur verið eftir 1. janúar 1982 í samræmi við eldri lög og gilt getur í allt að 20 ár talið frá umsóknardegi, er skv. 2. gr. og miðast gjaldár við aldur viðkomandi umsóknar. Ennfremur skal upphæðin, ef við á, reiknast sem hlutfall af viðkomandi árgjaldi eftir hlutfallinu: fjöldi eftirstandandi daga gjaldárs/365. Gjalddagi er sá almanaksdagur sem samsvarar útgáfudegi einkaleyfisins við lok gildistímabils sem er að ljúka. Eftir það greiðast árgjöld skv. 2. gr. fyrir eitt ár í senn.

Gjöld fyrir þau einkaleyfi, sem um getur í 1. mgr., og gilt geta í 15 ár talið frá útgáfudegi leyfis eru skv. a-lið 1. mgr. 3. gr. a. Gjalddagi er skv. 3. mgr. sömu greinar.

4. gr.

Ýmis gjöld vegna umsókna og veittra einkaleyfa:

1) Beiðni um innritun í einkaleyfadagbók eða einkaleyfaskrá, s.s.varðandi eiganda, aðilaskipti (framsal), uppfinningamann og nytjaleyfi, sbr. 9. og 43. gr. rg. ell. 1.600

2) Afrit af almennt aðgengilegri einkaleyfisumsókn (lýsing, einkaleyfiskröfur, ágrip og teikningar) eða af veittu einkaleyfi 550

3) Afrit af eintökum skv. 1. mgr. 25. gr. rg. ell. eða af einkaleyfi eða framlagningarskjali, allt að 550

4) Staðfest afrit af skjölum skv. 2. og 3. tl., m.a. forgangsréttarskjöl 2.200

5) Staðfest útskrift (ljósrit eða tölvuútskrift) úr einkaleyfaskrá 1.200

6) Skyndikönnun á því hvort umsókn eða einkaleyfi sé skráð í nafni ákveðins eiganda eða uppfinningamanns eða fyrir uppfinningu í tilteknum alþjóðlegum tækniflokki (að öðrum kosti skv. tímagjaldi)0

7) Beiðni um endurbirtingu umsóknar eða einkaleyfis 1.500

8) Endurveitingargjald skv. 72. gr. ell.12.500

II KAFLI 

 Gjöld fyrir vörumerki

5. gr.

Fyrir umsókn um skráningu vörumerkis greiðist:

a) Grunngjald, einn vöruflokkur innifalinn 11.000

b) Flokkagjald fyrir hvern vöruflokk umfram einn 2.500

c) Ef sótt er um skráningu á myndmerki eða stílfærðu orðmerki greiðist að auki1.300

6. gr.

Fyrir umsókn um endurnýjun vörumerkis greiðist:

a) Grunngjald, einn vöruflokkur innifalinn 11.000

b) Flokkagjald fyrir hvern vöruflokk umfram einn 2.500

7. gr.

Fyrir umsókn um skráningu gæðamerkis og endurnýjun greiðist:

a) Grunngjald, einn vöruflokkur innifalinn 14.000

b) Flokkagjald fyrir hvern vöruflokk umfram einn2.500

8. gr.

Ýmis gjöld vegna vörumerkja:

a) Beiðni um breytingu á skráðu merki, sbr. 24. gr. vörumerkjalaga og 9. gr. reglugerðar nr. 1/1969 2.000 - fylgi beiðnin umsókn um endurnýjun1.000

b) Beiðni um innritun nýs eiganda (framsals) í vörumerkjaskrá 1.600 - fylgi beiðnin umsókn um endurnýjun eða beiðni skv. a-lið 0

c) Beiðni um innritun nytjaleyfis1.600

d) Beiðni um endurbirtingu umsóknar eða skráningar1.500

e) Staðfest útskrift (ljósrit eða tölvuútskrift) úr vörumerkjaskrá 1.200

f) Útskrift (ljósrit eða tölvuútskrift) úr vörumerkjaskrá550

g) Skyndikönnun á því hvort tiltekið vörumerki sé að finna í vörumerkjaskrá (allt að tvö tilvik í senn) 0

h) Athugun og mat á því hvort tiltekið vörumerki telst það líkt skráðu vörumerki eða merki sem sótt hefur verið um skráningu á að ruglingshætta yrði hugsanlega talin vera fyrir hendi ef umsókn yrði lögð inn 2.300

III KAFLI 

 Gjöld fyrir hönnunarvernd.

9. gr.

Fyrir umsókn um skráningu á hönnunarvernd greiðist:

a) Grunngjald, birting einnar myndar innifalin 7.500

b) Fyrir hverja hönnun umfram eina í umsókn um samskráningu 3.000

c) Fyrir birtingu hverrar myndar umfram eina 2.000

10. gr.

Fyrir rannsókn skv. 18. gr. laganna:

a) Ef krafist er rannsóknar á því hvort tiltekin hönnun sé eins eða svipuðhönnun sem skráð er hér á landi eða sótt hefur verið um skráningu á, sbr. 1. mgr. 4.300

b) Ef krafa um rannsókn kemur fram við innlagningu umsóknar sbr.. 2. mgr.2.700

11. gr.

Gjöld fyrir endurnýjun skv. 24. gr. laganna:

a) Fyrsta endurnýjunartímabil 9.000

b) Viðbótargjald á fyrsta endurnýjunartímabili fyrir hverja hönnun umfram eina í samskráningu 3000

c) Síðari endurnýjunartímabil 12.000

d) Viðbótargjald á síðari endurnýjunartímabilum fyrir hverja hönnun í samskráningu 5.000

12. gr.

Gjald vegna kröfu um ógildingu skráningar6.000

13. gr.

Ýmis gjöld vegna hönnunar:

a) Beiðni um innritun nýs eiganda (framsals) eða nytjaleyfis í hönnunarskrá1.600

b) Útskrift (ljósrit eða tölvuútskrift) úr hönnunarskrá550

c) Staðfest útskrift (ljósrit eða tölvuútskrift) úr hönnunarskrá1.200

IV KAFLI 

 Gjöld vegna áfrýjunar.

14. gr.

Hámarksgjald vegna áfrýjunar, sbr. 1. mgr. 25. gr. og 2. mgr. 67. gr. laga nr. 17/1991, lög nr. 31/1984 og 30. gr. laga nr. 48/199380.000

Áfrýjunargjald greiðist iðnaðarráðuneyti við afhendingu bréfs um áfrýjun.

V KAFLI

Gjöld fyrir þjónustuverkefni.

15. gr.

Fyrir þjónustu sem ekki verður heimfærð undir einingarverð reglugerðarinnar, s.s. umfangsmeiri leit, athuganir, úrvinnslu eða tölvuútskriftir á grundvelli upplýsinga í einkaleyfaskrá, vörumerkjaskrá eða hönnunarskrá, greiðist tímagjald:

a) Sérfræðingar, á klst. 2.850

b) Aðrir starfsmenn, á klst.1.575

c) Fyrir ljósrit af gögnum varðandi einkaleyfi, vörumerki eða hönnun greiðist fyrir hverja síðu í stærðinni A4 45

Ef beiðni um ljósritun útheimtir verulega úrvinnslu gagna eða leit í skjalasafni reiknast að auki tímagjald samkvæmt staflið a eða b eftir því sem við á.

VI KAFLI 

 Gjöld fyrir Vörumerkja- og einkaleyfatíðindi o.fl.

16. gr.

a) Áskriftargjald á ári2.100

b) Lausasala, hvert eintak 250

c) Sérrit 1991-1994, hvert eintak 2.500

d) Sérrit, eldri árgangar, hvert eintak1.100

e) Áskrift að ágripi vegna birtra og/eða aðgengilegra einkaleyfisumsókna1.200

f) Ýmsar útskriftir í prentuðu eða fjölrituðu formi, þ.á m. íslensk lög og reglugerðir í erlendri þýðingu eða alþjóðlegir sáttmálar í íslenskri þýðingu220

VII KAFLI

Ýmis ákvæði.

17. gr.

Gjöld skv. reglugerð þessari greiðast Einkaleyfastofunni ef ekki er annað tekið fram.

Gjöld skv. 1. mgr. 1. gr., 2. gr., 3. gr. og 8. tl. 4. gr. endurgreiðast ekki þótt einkaleyfisumsókn verði afskrifuð, henni hafnað eða hún dregin til baka, beiðni um endurupptöku eða endurveitingu verði hafnað eða hún dregin til baka eða þótt einkaleyfishafi kjósi að láta einkaleyfi sitt falla úr gildi.

Gjöld skv. 5., 6., 7. og 9. grein skulu greidd við afhendingu umsóknar. Gjöld þessi verða ekki endurgreidd þótt synjað sé um skráningu eða umsókn afturkölluð. Undantekning er þó varðandi c-lið 9. gr.

18. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. heimild í 68. gr. laga nr. 17/1991 um einkaleyfi og 46. gr. laga nr. 47/1968 um vörumerki, sbr. lög nr. 31/1984, sbr. lög nr. 67/1993 og 40 gr. laga nr. 48/1993 um hönnunarvernd, og öðlast gildi 1. janúar 1996. Jafnframt falla úr gildi reglugerðir nr. 513/1993, nr. 177/1994 og nr. 167/1995.

Iðnaðarráðuneytið, 8. desember 1995.

F. h. r.
Þorkell Helgason.

Kristmundur Halldórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica