Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 18. apríl 2024

Stofnreglugerð Reglugerð án breytinga, sjá breytingasögu.

483/2020

Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/627 um samræmt, hagnýtt fyrirkomulag við framkvæmd opinbers eftirlits með afurðum úr dýraríkinu, sem eru ætlaðar til manneldis, í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana, öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/627 frá 15. mars 2019 um samræmt, hagnýtt fyrirkomulag við framkvæmd opinbers eftirlits með afurðum úr dýraríkinu, sem eru ætlaðar til manneldis, í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 og um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2074/2005 að því er varðar opinbert eftirlit. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 3/2020, frá 7. febrúar 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 16, frá 12. mars 2020, bls. 259.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2108 frá 16. desember 2020 um breytingu á II. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/627 að því er varðar heilbrigðismerkið sem nota skal á tiltekið kjöt sem er ætlað til manneldis í Breska konungsríkinu að því er varðar Norður-Írland. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 239/2020, frá 30. desember 2020.

2. gr.

Eftirfarandi viðbætur verða á efnisákvæðum framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/627:

  1. Eftirfarandi bætist við í a-lið 1. gr. II. viðauka: "IS" og "NO".
  2. Eftirfarandi bætist við í c-lið 1. gr. II. viðauka: "EFTA".
  3. Liður A í I. kafla VI. viðauka gildir ekki að því er varðar Ísland.

3. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

4. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.