Dóms- og kirkjumálaráðuneyti

480/2008

Reglugerð um einkennisfatnað og merki sýslumanna og löglærðra fulltrúa þeirra. - Brottfallin

I. KAFLI

Almenn ákvæði.

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um gerð og notkun einkennisfatnaðar og merkingar sýslumanna. Óheimilt er að nota einkenni, merki og/eða einkennisfatnað sýslumanns opinberlega eða í ólögmætum tilgangi, eða einkenni/merki eða fatnað sem er svo áþekkur þeim er sýslumaður notar, að hætta er á að á verði villst.

2. gr.

Sýslumenn skulu bera einkennisfatnað eftir því sem þurfa þykir eins og mælt er fyrir um í reglugerð þessari.

Löglærðir fulltrúar sýslumanna skulu bera einkennisfatnað samkvæmt reglugerð þessari, eftir því sem þurfa þykir, eftir ákvörðun sýslumanns.

II. KAFLI

Merki og einkenni sýslumanna.

3. gr.

Merki sýslumanna.

Merki sýslumanna skal vera gylltur munstraður hringur og er hluta af sverðsblaði með hjöltum stungið niður í hringinn. Merkið skal vera 3,5 sm á hæð, breidd hjaltanna 3 sm, en hringurinn 2,5 sm í þvermál.

Merki sýslumanna

4. gr.

Einkennishnappar.

Einkennishnappar sýslumanna og fulltrúa þeirra skulu vera hringlaga, kúptir, gylltir með upphleyptri mynd af skjaldarmerki Íslands. Hnapparnir skulu vera í tveimur stærðum. Minni gerðin skal vera 1,6 sm í þvermál en hin stærri 2,4 sm í þvermál.

5. gr.

Axlafetill.

Axlafetill skal fléttaður úr gylltum borða upphleyptum, þverbryddur að ofan og framan og ganga borðaendarnir felldir undan fremri bryddingunni. Fetillinn skal vera u.þ.b. 3 sm breiður að ofan og tvöfalt breiðari að framan.

III. KAFLI

Gerð einkennisfatnaðar sýslumanna og fulltrúa þeirra.

6. gr.

Einkennisfatnaður sýslumanna.

Einkennisfatnaður sýslumanna við dagleg störf skal vera sem hér segir:

  1. Húfa úr klæðisefni með 5 sm breiðri uppistandandi gjörð, 6,5 sm reisn og skal kollurinn halla aftur og til hliðar, gljáleðursskyggni og hökuól, er fest sé á gjörðina með tveimur litlum, gylltum einkennishnöppum. Á gjörð skal vera 4 sm breiður gylltur borði og á honum ofið hringmerki (kokarde) í íslenskum fánalitum. Á reisn að framan skal vera skjaldarmerki Íslands, 4 sm hátt, gyllt að lit og úr málmi.
  2. Jakki úr slitsterku klæðisefni, fóðraður, tvíhnepptur með hefðbundnum kraga, tveimur hliðarvösum og einum brjóstvasa. Kvenmannsjakkar skulu vera aðsniðnir. Þá skulu vera brjóstvasar innan á. Á jakkanum skulu vera tvær raðir gylltra einkennishnappa, 2,4 sm í þvermál með skjaldarmerki Íslands, fjórir í hverri röð og skal jakkinn hnepptur á þrjá þeirra. Á ermunum skulu vera gylltir einkennishnappar 1,6 sm í þvermál með skjaldarmerki Íslands, þrír á hvorri ermi. Í kragahornum jakkans skal vera útsaumað merki sýslumanna sbr. 3. gr.
  3. Vesti úr sama efni og jakki með fjórum vösum hneppt með einfaldri röð hinna minni einkennishnappa (6-7 að tölu).
  4. Buxur skulu vera úr sama efni og jakki og vesti, án uppábrota og með tveimur vösum á kvenbuxum en fjórum vösum á herrabuxum.
  5. Pils skulu vera úr sama efni og buxur og vera með beinu sniði.
  6. Frakki úr frakkaklæði, tvíhnepptur og skal hann ná niður á miðjan legg. Á frakkanum skulu vera tveir skásettir vasar með þremur litlum einkennishnöppum á jöðrum að framan. Kraginn skal vera venjulegur frakkakragi og skulu hornin þannig gerð að hneppa megi frakkanum upp í háls. Að framan skal vera tvöföld röð stórra, gylltra einkennishnappa, fimm í hvorri röð, hinn efsti undir kragahorni. Í klauf að aftan skulu vera þrír litlir einkennishnappar. Á ermum skulu vera litlir einkennishnappar, þrír á hvorri.
  7. Svart bindi.
  8. Einkennisfatnaður skal vera svartur að lit.

7. gr.

Einkennisfatnaður löglærðra fulltrúa sýslumanna.

Einkennisfatnaður löglærðs fulltrúa skal vera sá sami og einkennisfatnaður sýslumanna að undanskildum eftirtöldum atriðum:

Húfa: Á reisn að framan skal vera skjaldarmerki Íslands, 3 sm hátt, gyllt að lit og úr málmi. Borðinn á gjörð skal vera 2,5 sm breiður.

Jakki: Jakki skal vera án kragamerkis.

8. gr.

Hátíðarbúningur sýslumanna.

Hátíðarbúningur er sem segir í 6. gr. og skal hann prýddur sérstökum einkennum sem hér segir:

  1. Á öxlum jakkans skal vera axlafetill eins og lýst er í 5. gr. Fetillinn skal vera festur á jakkaöxlina með litlum einkennishnappi að ofan en stórum að framan, og séu hnapparnir rétt innan við þverbryddingarnar.
  2. Á ermum jakkans skal vera gylltur slönguhringur og liggja slönguhausarnir útsaumaðir á víxl ofan á erminni u.þ.b. 2 sm breiðir, en tengdir saman með snúru, er vefst um ermina.
  3. Á hliðarsaumum á buxum skulu vera 2 sm breiðir, gylltir borðar.

9. gr.

Skikkjur.

Skikkja skal vera úr lipru ullarefni, dökkblá að lit, nokkuð víð og skal ná niður fyrir hné. Kragalaus, boðungar kræktir saman að framan. Ísettar ermar, nokkuð víðar, beinar niður. Rúnnað herðastykki, úr sléttu bómullarflaueli, í bláum lit sem næst aðallit skikkj­unnar. Kantur á boðungum 10 sm og framan á ermum 8 sm, úr sama efni. Loku­fellingar á bakstykki undir herðastykki.

IV. KAFLI

Notkun einkennisfatnaðar.

10. gr.

Sýslumenn og löglærðir fulltrúar.

Einkennisfatnað skal nota að jafnaði við embættisathafnir á skrifstofu eða utan hennar þegar nauðsynlegt er að gefa til kynna framkvæmd opinbers valds og ef sérstakar ástæður mæla því ekki gegn. Hann skal nota við eftirfarandi athafnir:

  1. Við hátíðleg tækifæri og meiri háttar viðburði í héraði, sem embættismaður eða fulltrúi hans, sbr. 2. gr., er viðstaddur stöðu sinnar vegna.
  2. Við hjónavígslur.
  3. Við framkvæmd aðfarargerða utan skrifstofu sýslumanns.
  4. Við framkvæmd bráðabirgðagerða utan skrifstofu sýslumanns.
  5. Við öflun sönnunargagna vegna ætlaðra brota á hugverkaréttindum.
  6. Við nauðungarsölur.
  7. Við önnur verkefni utan starfsstöðvar þar sem embættismaður eða fulltrúi hans, sbr. 2. gr., kemur fram stöðu sinnar vegna.

Við hjónavígslur á skrifstofu er heimilt, að fengnu sérstöku leyfi dóms- og kirkjumála­ráðuneytisins, að notast við skikkjur skv. 9. gr. í stað einkennisfatnaðar.

11. gr.

Hátíðarbúningur sýslumanna.

Sýslumaður skal nota hátíðarbúning við opinber og/eða hátíðleg tækifæri. Hátíðarbúning skal nota við eftirfarandi athafnir:

  1. Við heimsókn, móttöku og fylgd forseta Íslands eða annarra þjóðhöfðingja.
  2. Við hátíðleg tækifæri og meiri háttar viðburði í héraði, sem sýslumaður er við­staddur stöðu sinnar vegna.

Sýslumanni er heimilt að nota hátíðarbúning við hjónavígslur.

IV. KAFLI

Úthlutun og meðferð einkennisfatnaðar.

12. gr.

Sýslumenn fá einkennisfatnað við upphaf starfs. Einkennisfatnað skal endurnýja eftir því sem þörf krefur. Einkennisfrakka skal þó endurnýja eigi oftar en á sex ára fresti, nema sérstaklega standi á.

Löglærðir fulltrúar er gegna starfi sem útheimtir notkun einkennisfatnaðar samkvæmt ákvæðum reglugerðar þessarar skulu fá einkennisfatnað í upphafi starfs. Þó er heimilt að fresta afhendingu um þriggja mánaða skeið, ef unnt er, uns reynslutími samkvæmt ráðningarsamningi er liðinn.

Löglærðir fulltrúar skulu fá einkennisfatnað eftir því sem þurfa þykir, eftir ákvörðun sýslu­manns. Einkennisfrakka skal þó endurnýja eigi oftar en á sex ára fresti, nema sérstak­lega standi á.

Venjulegt viðhald einkennisfatnaðar skulu sýslumenn og fulltrúar þeirra greiða sjálfir. Þeir skulu þó fá greitt fyrir eina fatahreinsun á ári. Meiri háttar tjón á einkennisfatnaði, sem rekja má til starfans skal bætt með nýjum einkennisklæðnaði.

13. gr.

Kaup á einkennisfatnaði.

Sýslumenn skulu annast innkaup á einkennisfatnaði fyrir sig og fulltrúa sína í samræmi við reglugerð þessa. Óheimilt er að taka út annan fatnað en einkennisfatnað á grundvelli þessarar reglugerðar.

Einkennisfatnaður skal á hverjum tíma keyptur hjá þeim söluaðila er dóms- og kirkju­mála­ráðuneytið vísar á.

Þegar sýslumaður eða löglærður fulltrúi endurnýja einkennisfatnað sinn skal eldri búningi skilað til sýslumanns og leitast skal við að nota sömu einkenni og prýða eldri búning. Þetta á við um einkennishnappa, kragamerki, axlafetil og húfumerki. Einkenni skal þó ekki endurnýta ef einkennin eru 6 ára gömul eða eldri nema þau séu í þeim mun betra ásigkomulagi. Séu einkenni ónothæf ber að senda þau til dómsmálaráðuneytisins til eyðingar.

Þegar einkennisfatnaður hefur verið pantaður og er tilbúinn þá skal söluaðili senda við­komandi sýslumannsembætti einkennisfatnaðinn.

Sýslumenn skulu halda skrá yfir afhentan einkennisfatnað sem send eru dóms- og kirkju­málaráðuneytinu árlega eða gera grein fyrir þessu í ársskýrslu.

14. gr.

Eignaheimild og skil á einkennisfatnaði.

Einkennisfatnaður sem sýslumaður eða löglærður fulltrúi hefur fengið afhentan sam­kvæmt reglugerð þessari og notað lengur en í þrjú ár, skal teljast hans eign. Tilheyr­andi einkennum ber honum þó að skila til viðkomandi sýslumanns við starfslok.

Löglærðum fulltrúum, sem starfað hafa skemur en í þrjú ár, ber við starfslok að skila öllum einkennisfatnaði og einkennum sem þeir hafa fengið afhentan vegna starfans.

Sýslumenn skulu skila öllum einkennum af einkennisfatnaði, sem ekki verða endurnýtt sbr. 12. gr., til dóms- og kirkjumálaráðuneytisins.

Hafi sýslumaður gegnt embætti í fimm ár eða lengur er honum heimilt að halda einkennis­húfu til minja með öllum einkennismerkjum. Sama gildir um fulltrúa hans, hafi hann gegnt stöðu fulltrúa í fimm ár eða lengur.

Sýslumaður sem lætur af embætti fyrir aldurssakir skal halda einkennisfatnaði með öllum einkennum.

15. gr.

Notkun einkennisfatnaðar utan vinnutíma.

Sýslumönnum og löglærðum fulltrúum þeirra er óheimilt að nota einkennisfatnaðinn án þess að eiga í embættiserindum. Ef um er að ræða notkun erlendis skal óska heimildar dóms- og kirkjumálaráðuneytisins.

Sýslumanni sem látið hefur af embætti fyrir aldurssakir er heimilt að nota einkennis­fatnað sinn við sérstök hátíðleg tækifæri og/eða sérstakar minningarathafnir að fengnu leyfi dóms- og kirkjumálaráðuneytisins.

16. gr.

Lán eða leiga einkennisfatnaðar sýslumanna.

Sýslumönnum er í sérstökum undantekningartilvikum heimilt að lána einkennisbúninga endurgjaldslaust.

Um útlán einkennisbúninga gilda eftirfarandi reglur:

  1. Sýslumönnum er heimilt að samþykkja útlán á einkennisklæðnaði til kvikmynda­fyrirtækja og leikhúsa vegna notkunar við gerð kvikmynda eða við leiksýningar.
  2. Notkun einkennisfatnaðar sýslumanna skal takmörkuð við viðkomandi kvikmynd eða leikrit og á meðan tökur eða sýningar standa. Óheimilt er að nota einkennis­fatnaðinn við aðstæður sem teljast augljóslega lítilsvirðandi fyrir starfsemi sýslu­manns.
  3. Tilkynna skal hlutaðeigandi sýslumanni um allar kvikmyndatökur utandyra með hæfilegum fyrirvara.
  4. Óheimilt er að samþykkja lán á einkennisfatnaði sýslumanns vegna auglýsinga, nema um sé að ræða sérstakar forvarnarauglýsingar.

17. gr.

Ágreiningsmál.

Dómsmálaráðherra sker úr ágreiningi sem upp kann að koma svo sem um notkun einkennisfatnaðar, gerð hans og afhendingu, svo og öðrum vafaatriðum við framkvæmd reglugerðar þessarar.

18. gr.

Brot gegn reglugerðinni geta varðað refsingu skv. 117. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

V. KAFLI

Gildistaka.

19. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 4. mgr. 6. gr. laga um framkvæmdar­vald ríkisins í héraði nr. 92 1. júní 1989, sbr. 8. gr. laga nr. 24/2007, öðlast þegar gildi.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 2. maí 2008.

Björn Bjarnason.

Skúli Þór Gunnsteinsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica