Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

475/2019

Reglugerð um (20.) breytingu á reglugerð nr. 258/2012, um rækjuveiðar innfjarða. - Brottfallin

1. gr.

Við reglugerðina kemur nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Heimilt er að veiða innfjarðarækju til og með 31. ágúst 2019 í Arnarfirði og í Ísafjarðardjúpi.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. maí 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica