Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

464/2022

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 1140/2019, um ferðakostnað sjúkratryggðra og aðstandenda þeirra innanlands.

1. gr.

Í stað "¾ kostnaðar" í 1. málsl. 6. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar kemur: 95% kostnaðar.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. og 2. mgr. 30. gr. og 55. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. maí 2022.

Heilbrigðisráðuneytinu, 12. apríl 2022.

Willum Þór Þórsson.

Guðlaug Einarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.