Viðskiptaráðuneyti

461/2009

Reglugerð um breytingu á reglugerð um löggildingartákn og merkingar eftirlitsskyldra mælitækja, nr. 955/2006, með síðari breytingum.

1. gr.

Ákvæði 3. mgr. 5. gr. orðist svo:

Ný mælitæki, sem setja má á markað og taka í notkun án undangenginnar fyrstu lög­gild­ingar, samkvæmt nánari ákvæðum í reglugerðum um viðkomandi mælitæki, skal merkja með miðum í samræmi við tl. 1.1 og tl. 1.3 í 1. gr. viðauka við reglugerð þessa.

2. gr.

Fyrirsögn 1. gr. viðaukans verði:

1. gr. Miðar fyrir ný tæki og löggildingarmiðar.

3. gr.

Í tl. 1.1 í 1. gr. viðaukans breytast fyrirsögn og mynd af miðanum og verða þannig:

1.1 Miðar fyrir nýjar vogir og mælikerfi.

Miðar fyrir nýjar vogir og mælikerfi

4. gr.

Í tl. 1.3 í 1. gr. viðaukans breytast fyrirsögn og mynd af miðanum og verða þannig:

1.3 Miðar fyrir nýja raforkumæla og vatnsmæla.

Miðar fyrir nýja raforkumæla og vatnsmæla

5. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 44. gr. laga nr. 91/2006, um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn og öðlast þegar gildi.

Viðskiptaráðuneytinu, 4. maí 2009.

Gylfi Magnússon.

Jónína S. Lárusdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica