Fara beint í efnið

Prentað þann 5. maí 2024

Breytingareglugerð

453/2023

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 750/2016 um flugvernd.

1. gr.

Við 1. mgr. 52. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi stafliður:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1174 frá 7. júlí 2022 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/1998 að því er varðar ítarlegar ráðstafanir til að framfylgja sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 69/2023 frá 17. mars 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 20. apríl 2023, bls. 479-486.

2. gr.

Við 2. mgr. 52. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi stafliðir:

  1. Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2147 frá 3. desember 2021 um samþykki fyrir flugverndarbúnaði í almenningsflugi með "ESB-stimpli", sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 192/2022 frá 10. júní 2022.
  2. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar C(2022) 4638 frá 7. júlí 2022 um breytingu á framkvæmdarákvörðun C(2015) 8005 að því er varðar tilteknar ítarlegar ráðstafanir til að framfylgja sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 167. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 24. apríl 2023.

F. h. r.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Valgerður B. Eggertsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.