Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

422/2015

Reglugerð um (9.) breytingu á reglugerð nr. 630/2007 um ólífrænan áburð.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XIV. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samn­inginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 51/2015 frá 21. mars 2015 öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1257/2014 frá 24. nóvember 2014 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2003/2003 um áburð í því skyni að aðlaga I. og IV. viðauka. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 23, frá 23. apríl 2015, bls. 283.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna áburðar­eftirlits sé framfylgt í samræmi við 3. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

4. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. apríl 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica