Fara beint í efnið

Prentað þann 30. apríl 2024

Breytingareglugerð

416/2024

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 350/2009 um kennslanefnd.

1. gr.

Í stað orðsins "innanríkisráðherra" í 3. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar kemur: ráðherra.

2. gr.

3. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Formaður nefndarinnar ákveður í samráði við hlutaðeigandi lögreglustjóra, hvort nefndin skuli starfa fullskipuð eða einstakir nefndarmenn taki þátt í rannsókn tiltekins máls. Á sama hátt skal ákveða hvort kveðja skuli aðra sérfræðinga til. Í vafatilvikum skal bera málið undir ríkislögreglustjóra.

3. gr.

4. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Störf nefndarinnar fara að jafnaði fram í Reykjavík. Þó getur formaður nefndarinnar ákveðið að höfðu samráði við hlutaðeigandi lögreglustjóra hvort störf nefndarinnar skuli fara fram að nokkru eða öllu leyti á vettvangi eða annars staðar, og lýtur kennslanefnd þá stjórn viðkomandi lögreglustjóra. Í vafatilvikum skal bera málið undir ríkislögreglustjóra.

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins "ríkislögreglustjóranum" í 1. mgr. kemur: formanni nefndarinnar.
  2. 2. mgr. orðist svo:
    Þegar tilkynning berst frá lögreglustjóra um meiri háttar slysfarir virkjast gildandi hópslysaáætlun í því lögregluumdæmi þar sem slys hefur orðið, í samræmi við ákvæði áætlunarinnar. Með sama hætti geta séráætlanir einnig virkjast við meiri háttar slysfarir, svo sem við flugslys.
  3. 3. mgr. orðist svo:
    Lögreglustjórar geta leitað eftir aðstoð frá kennslanefndinni í öðrum tilvikum. Formaður nefndarinnar ákveður hvort orðið skuli við slíkri beiðni. Í vafatilvikum skal bera málið undir ríkislögreglustjóra.

5. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins "ríkislögreglustjóra" í heiti greinarinnar kemur: formanns nefndarinnar.
  2. Í stað orðsins "ríkislögreglustjóra" í a-lið 1. mgr. kemur: formanni nefndarinnar.
  3. Í stað orðsins "ríkislögreglustjóra" í c-lið 1. mgr. kemur: formanni nefndarinnar.

6. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. reglugerðarinnar:

  1. 2. mgr. orðist svo:
    Formaður skal sjá til þess að fundargerð verði rituð.
  2. Á eftir 3. mgr. 8. gr. bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Kennslanefnd ber að senda embætti ríkislögreglustjóra ársskýrslu, fyrir síðastliðið ár, þar sem gerð er grein fyrir störfum nefndarinnar, þar á meðal upplýsingar um á hvaða grundvelli greiningar voru framkvæmdar, upplýsingar um samanburðartengsl og útlistun á ferðum og ferðakostnaði vegna alþjóðasamstarfs. Ársskýrslu ber að skila fyrir lok febrúar ár hvert.
  3. Heiti 8. gr. orðist svo: Fundir nefndarinnar og upplýsingamiðlun til embættis ríkislögreglustjóra.

7. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 43. gr. lögreglulaga nr. 90/1996, öðlast þegar gildi.

Dómsmálaráðuneytinu, 15. mars 2024.

Guðrún Hafsteinsdóttir.

Haukur Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.