Sjávarútvegsráðuneyti

447/2003

Reglugerð um loðnuveiðar erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands á loðnuvertíðinni 2003/2004. - Brottfallin

447/2003

REGLUGERÐ
um loðnuveiðar erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands
á loðnuvertíðinni 2003/2004.

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til loðnuveiða norskra og færeyskra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, á loðnuvertíðinni 20. júní 2003 til 30. apríl 2004.


2. gr.

Aðeins þeim skipum sem fengið hafa sérstakt leyfi frá Fiskistofu er heimilt að stunda loðnuveiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Um borð í veiðiskipi skal vera leyfi til loðnuveiða eða afrit af því og reglur sem um loðnuveiðar gilda.

Skip sem óska eftir leyfi til loðnuveiða skulu sækja um það til Fiskistofu. Í umsókninni komi fram upplýsingar um nafn skips, skráningarnúmer, kallmerki, stærð í brúttótonnum, burðargetu og upplýsingar um fjarskiptatæki. Skip sem afsala sér veiðileyfi skulu tilkynna það Fiskistofu, og komi sömu upplýsingar fram og í umsókninni.


3. gr.

Norskum skipum er heimilt að veiða samtals 13.980 lestir í efnahagslögsögu Íslands og er þeim aðeins heimilt að stunda loðnuveiðar í efnahagslögsögu Íslands til 15. febrúar 2004 og norðan við 64°30N.

Færeyskum skipum er heimilt að veiða í fiskveiðilandhelgi Íslands samtals 30.000 lestir.

Allar veiðar eru bannaðar í fiskveiðilandhelgi Íslands tímabilið 16. ágúst - 15. september 2003. Erlend veiðiskip skulu hlíta þeim verndaraðgerðum sem stjórnvöld og Hafrannsóknastofnun kunna að grípa til.


4. gr.

Færeyskum og norskum skipum er heimilt að landa afla sínum í íslenskum höfnum og gilda um vigtun afla sömu reglur og gilda fyrir íslensk skip. Óheimilt er að umskipa afla í fiskveiðilandhelgi Íslands.

Færeyskum skipum sem stunda loðnuveiðar eftir 15. febrúar 2004 í fiskveiðilandhelgi Íslands er óheimilt að landa loðnuafla utan Íslands nema til bræðslu.


5. gr.

Ekki fleiri en 5 norsk skip stunda loðnuveiðar í fiskveiðilandhelginni samtímis.

Ekki skulu fleiri en 10 færeysk skip stunda loðnuveiðar samtímis.

Óheimilt er að hefja veiðar í fiskveiðilandhelginni nema fyrir liggi staðfesting frá Landhelgisgæslu Íslands um að fjöldi skipa sé innan tilskilinna marka.

Ekki skulu fleiri loðnuveiðiskip frá hverri þjóð vera í fiskveiðilandhelgi Íslands hverju sinni, en hlotið hafa staðfestingu frá Landhelgisgæslunni, sbr. þó 12. gr.


6. gr.

Skip skulu, á leið til veiðisvæðis áður en veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands hefjast og á leið út úr fiskveiðilandhelgi Íslands, sigla um einn af eftirfarandi athugunarstöðum:
a) 65°00N - 10°00V
b) 66°15N - 09°00V
c) 67°30N - 10°00V
d) 68°30N - 11°00V
e) 69°15N - 13°00V
f) 68°40N - 16°30V
g) 68°00N - 20°00V

Landhelgisgæslu Íslands er heimilt að ákveða hvaða athugunarstað veiðiskip siglir um. Heimilt er með samþykki Landhelgisgæslunnar að halda til annarra athugunarstaða en tilgreindir eru í 1. mgr.

Óheimilt er að yfirgefa athugunarstað áður en tilkynntur komutími er liðinn, skv. 8. og 11.gr., nema að fengnu samþykki Landhelgisgæslunnar.


7. gr.

Skip sem leyfi hafa fengið til loðnuveiða sbr. 2. gr. skulu búin fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Landhelgisgæslu og Fiskistofu.


8. gr.

Tilkynna skal Landhelgisgæslunni siglingu skipsins inn í íslenska lögsögu og komutíma á athugunarstað með minnst 6 klukkustunda fyrirvara og mest 12 klukkustunda fyrirvara.

Í tilkynningunni komi eftirfarandi upplýsingar fram í þessari röð:
Orðið "komutilkynning" (entry report).
Nafn skips.
Kallmerki.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd þegar tilkynning er send.
Heildarafli um borð, í tonnum.
Athugunarstað sem siglt verður um, sbr. 6. gr. og fyrirhugaður komutími á staðinn.

Haldi skip til veiða úr íslenskri höfn skal það tilkynnt Landhelgisgæslunni á sama hátt og greint er í 1. mgr.


9. gr.

Skip sem stundar veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands skal á hverjum degi á tímabilinu frá kl. 00.00 til 08.00 að íslenskum tíma, senda Landhelgisgæslunni tilkynningu þar sem eftirfarandi kemur fram í þessari röð:
Orðið "aflatilkynning" (catch report).
Nafn skips.
Kallmerki.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd þegar tilkynning er send.
Heildarafli um borð, í tonnum.
Afli síðasta sólarhrings, miðað við kl. 24.00, eða afli frá því skipið kom inn í fiskveiðilandhelgi Íslands sé um skemmri tíma að ræða.


10. gr.

Þegar skip lýkur veiðum í fiskveiðilandhelgi Íslands skal það tilkynnt Landhelgisgæslunni. Í tilkynningunni komi eftirfarandi upplýsingar fram í þessari röð:
Orðið "lokatilkynning" (exit report).
Nafn skips.
Kallmerki.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd þegar tilkynning er send.
Heildarafli um borð, í tonnum.
Afli síðan síðasta aflatilkynning var send.


11. gr.

Áður en skip heldur út úr fiskveiðilandhelgi Íslands skal senda Landhelgisgæslunni tilkynningu um það og komutíma á athugunarstað með minnst 6 klukkustunda fyrirvara og mest 12 klukkustunda fyrirvara. Í tilkynningunni komi eftirfarandi upplýsingar fram í þessari röð:
Orðið "athugunartilkynning" (control report).
Nafn skips.
Kallmerki.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd, þegar tilkynning er send.
Heildarafli um borð, í tonnum.
Athugunarstaður sem siglt verður um, sbr. 6. gr. og fyrirhugaður komutími á staðinn.

Landi skip afla sínum í íslenskri höfn skal tilkynna það Landhelgisgæslunni á sama hátt og greint er frá í 1. mgr.

Landi skip afla sínum í íslenskri höfn skal tilkynna það Landhelgisgæslunni á sama hátt og greint er frá í 1. mgr. en í stað athugunarstaðar í síðasta lið verði greint frá löndunarhöfn.

Heimilt er að senda saman tilkynningu um lok veiða, sbr. 10. gr. og um komu á athugunarstað. Við sendingu slíkrar tilkynningar eiga við ákvæði þessarar greinar að öðru leyti en því að í stað orðsins: "athugunartilkynning" (control report) koma orðin: "loka- og athugunartilkynning" (exit og control report).


12. gr.

Þrátt fyrir ákvæði 5. gr. er skipum sem ekki hafa staðfestingu Landhelgisgæslunnar, sbr. 3. mgr. 5. gr., heimil óslitin sigling um fiskveiðilandhelgina, enda tilkynni þau til Landhelgisgæslunnar um komu sína í fiskveiðilandhelgina, eða brottför úr íslenskri höfn, með minnst 6 klukkustunda fyrirvara og mest 12 klukkustunda fyrirvara. Í tilkynningunni komi eftirfarandi upplýsingar fram í þessari röð:
Orðið "In".
Nafn skips.
Kallmerki.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd, þegar tilkynning er send.
Heildarafli um borð, í tonnum.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd, þegar sigling út úr lögsögunni er áætluð.

Á 12 klukkustunda fresti skal síðan senda tilkynningu um staðsetningu skipsins til Landhelgisgæslunnar. Í tilkynningunni komi eftirfarandi upplýsingar fram í þessari röð:
Orðið "Staðsetningartilkynning" (position report).
Nafn skips.
Kallmerki.
Dagsetning, tími, stefna, hraði og staðsetning í breidd og lengd, þegar tilkynning er send.

Þegar skip siglir út úr íslenskri fiskveiðilandhelgi skal það tilkynnt til Landhelgisgæslunnar. Í tilkynningunni komi eftirfarandi upplýsingar fram í þessari röð:
Orðið "Out".
Nafn skips.
Kallmerki.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd, þegar tilkynning er send.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd þegar skip siglir út úr lögsögunni.


13. gr.

Skipstjórum erlendra loðnuskipa ber að auðvelda eins og unnt er eftirlit Landhelgisgæslu og Fiskistofu með veiðum, veiðarfærum og afla um borð í veiðiskipum. Telji eftirlitsaðilar að fullnægjandi eftirlit geti ekki farið fram á sjó er hlutaðeigandi skipstjórum skylt að hlíta fyrirmælum um að halda til nálægrar hafnar þar sem athugun getur farið fram.

Fiskistofu er heimilt að setja eftirlitsmenn um borð í erlend loðnuveiðiskip. Skal útgerð skipsins sjá eftirlitsmönnum fyrir fæði og aðstöðu meðan þeir eru um borð við eftirlit og ennfremur greiða allan kostað af veru þeirra um borð í skipinu.

Í afladagbók, sem skal vera innbundin, með númeruðum síðum og í tvíriti, skal skipstjóri skrá eftirfarandi upplýsingar: Nafn skips, skráningarnúmer og kallmerki. Fyrir hvert kast skal skrá staðsetningu, dagsetningu og tíma þegar nótinni er kastað og afla í hverju kasti í tonnum, áður en nótinni er kastað á ný. Einnig skal skrá heildarafla á sólarhring í fiskveiðilandhelgi Íslands, stærð nótar og möskvastærð. Þá skal skipstjóri undirrita hverja síðu. Jafnframt skal Hafrannsóknastofnuninni sent afrit úr afladagbókum, sé þess óskað.

Starfsmenn Landhelgisgæslunnar og veiðieftirlits Fiskistofu skulu hafa aðgang að eftirtöldum gögnum sé þess óskað:
Afladagbók.
Skipsdagbók.
Mælibréfi.
Teikningum af skipi.
Veiðileyfi frá Fiskistofu eða afriti af því.
Upplýsingum úr siglingatölvum og staðsetningartækjum skips.
Öðrum gögnum sem skipt geta máli við rannsókn meintra fiskveiðibrota.

Um borð í hverju skipi skulu vera teikningar af lestum þess þar sem fram kemur heildarrúmmál hverrar lestar. Þá skulu teikningar eða gögn sýna hvert rúmmál lestanna er miðað við 10 sentímetra millibil frá ákveðnum og merktum viðmiðunarstað.


14. gr.

Óheimilt er að stunda veiðar með öðrum veiðarfærum en nót.


15. gr.

Skipum ber að fylgja banni ráðuneytisins við veiðum vegna verndunarsjónarmiða og skyndilokunum Hafrannsóknastofnunarinnar, sbr. 8.-11. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


16. gr.

Heimilt er að veita undanþágu frá ákvæðum 6. gr. og 8.-11. gr. hafi aðilar gert samkomulag þar um.


17. gr.

Tilkynningar skv. 7.-11. gr. skal senda á íslensku eða ensku, og skulu tímasetningar vera miðaðar við íslenskan tíma, UTC.

Skip sem hafa veiðileyfi skv. reglugerð þessari skulu að öðru leyti fylgja ákvæðum laga nr. 22, 8. apríl 1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands.


18. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 22, 8. apríl 1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

Jafnframt getur Fiskistofa svipt skip leyfi til loðnuveiða innan fiskveiðilandhelginnar brjóti útgerð eða áhöfn skips eða aðrir sem í þágu útgerðar starfa, gegn reglugerð þessari.


19. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. ákvæðum laga nr. 22, 8. apríl 1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 20. júní 2003.

Árni M. Mathiesen.
Jón B. Jónasson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica