Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 17. ágúst 2023

411/2021

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta almennt lækningaleyfi og sérfræðileyfi, nr. 467/2015.

1. gr.

1. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Reglugerð þessi gildir um réttindi og skyldur lækna, veitingu almennra lækningaleyfa, sérnám í læknisfræði og veitingu sérfræðileyfa.

2. gr.

Orðin "og starfsnámi skv. 4. gr." í 1. mgr. 3. gr. falla brott.

3. gr.

Í stað orðanna "reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum EES-ríkjum, nr. 461/2011," í 4. mgr. 3. gr., 8. mgr. 7. gr. og 18. gr. reglugerðarinnar kemur, í viðeigandi beygingarfalli: reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum EES-ríkjum eða Sviss til að starfa hér á landi, nr. 510/2020.

4. gr.

4. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

5. gr.

Orðin "og skilyrði 4. gr." og "og starfsnám" í 5. gr. reglugerðarinnar falla brott.

6. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. reglugerðarinnar:

  1. Orðin "og starfsnámi skv. 4. gr." í a-lið 2. mgr. falla brott.
  2. Á eftir "hafa lokið viðurkenndu sérnámi" í c-lið 2. mgr. kemur: , að meðtöldum sérnámsgrunni,.
  3. 3. mgr. orðast svo:
    Aðeins er heimilt að veita sérfræðileyfi hér á landi í þeim sérgreinum þar sem marklýsing fyrir sérnámið í heild hefur verið samþykkt af mats- og hæfisnefnd, sbr. 15. gr. Þó er landlækni heimilt að staðfesta sérfræðileyfi frá öðru ríki.
  4. 4. mgr. orðast svo:
    Heildarnámstími sérnáms skal vera að lágmarki 5 ár (60 mánuðir) í aðalgrein, að undangengnum sérnámgrunni eða starfsnámi skv. 6. mgr. 8. gr., og tvö ár (24 mánuðir) í undirsérgrein, sbr. þó. 7. mgr.

7. gr.

8. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Sérnám í læknisfræði skal fela í sér fræðilegt og verklegt nám við háskóla eða heilbrigðisstofnun sem viðurkennd er af heilbrigðisyfirvöldum hér á landi eða háskóla eða heilbrigðisstofnun sem viðurkennd er til slíks sérnáms í því ríki þar sem sérnámið er stundað.

Sérnám í læknisfræði skal uppfylla, hvað varðar innihald og námstíma, kröfur um sérnám sem gerðar eru í því ríki þar sem sérnám er stundað, en við mat á sérnámi frá ríki utan EES og Sviss skal haft til hliðsjónar það sérnám í læknisfræði sem fram fer á Íslandi. Ef slíkt er ekki að fullu skilgreint hér á landi skal höfð hliðsjón af sérnámi í öðrum ríkjum, svo sem á Norðurlöndum eða í Bandaríkjunum.

Sérnám skal hefjast á sérnámsgrunni sem skal vera 12 mánaða klínískt nám og þannig skipulagður að 4 mánuðir séu á lyflækningadeild, a.m.k. 4 mánuðir á heilsugæslu, og 2 til 4 mánuðir á öðrum deildum, hámark tveimur. Sérnámsgrunni skal að fullu lokið áður en sérnám í aðalgrein hefst.

Tímalengd sérnámsgrunns miðast við fullt starf (100%). Námstíminn skal að jafnaði skipulagður sem námsblokkakerfi í eitt ár í senn. Fjarvistir umfram tvær vikur lengja sérnámsgrunninn sem því nemur. Heimilt er að veita undanþágu frá reglu um 100% starfshlutfall og veita heimildir til töku sérnámsgrunns í hlutastarfi, þó að lágmarki 50% starfi, enda lengist námstími hvers hluta sérnámsgrunnsins sem því nemur. Störf sem unnin eru utan skipulagðra námsblokka samkvæmt þessu ákvæði teljast ekki hluti af sérnámsgrunni.

Viðkomandi heilbrigðisstofnanir og sérnámslæknir skulu gera með sér samning þar sem kveðið er á um réttindi og skyldur stofnunar og læknis í sérnámsgrunni. Nám í sérnámsgrunni skal fara fram samkvæmt marklýsingu fyrir sérnámsgrunn, sbr. 15. gr. Viðkomandi heilbrigðisstofnun ber ábyrgð á að námið sé í samræmi við markmið marklýsingar.

Heimilt er að meta fyrstu stig sérnáms sem stundað hefur verið erlendis upp í sérnámsgrunn enda uppfylli námið skilyrði 3. og 4. mgr. og var stundað við heilbrigðisstofnun sem er viðurkennd af heilbrigðisyfirvöldum í því ríki þar sem námið var stundað og heilbrigðisyfirvöldum hér á landi.

Ráðherra skal skipa nefnd til fjögurra ára sem skipuleggur námsblokkir, fjölda þeirra og ráðningarferli fyrir lækna í sérnámsgrunni í samvinnu við þær heilbrigðisstofnanir sem viðurkenndar eru til slíks náms. Nefndin skal skipuð sex fulltrúum með læknismenntun, tveimur frá Landspítala, einum frá Sjúkrahúsinu á Akureyri, einum frá heilbrigðisstofnun utan höfuðborgarsvæðisins, einum frá Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu og einum frá Félagi almennra lækna. Skipa skal jafnmarga fulltrúa til vara. Ráðherra skipar formann úr hópi nefndarmanna. Aðsetur nefndarinnar skal vera á Landspítala sem leggur nefndinni til starfsmann og starfsaðstöðu. Námsblokkirnar skulu auglýstar lausar til umsóknar eigi síðar en 15. desember ár hvert. Formaður nefndarinnar staðfestir á grundvelli vottorða frá framkvæmdastjórum lækninga þeirra stofnana þar sem námið fór fram að sérnámslæknir hafi lokið starfsnámi á fullnægjandi hátt. Ef vafi leikur á um að sérnámslæknir uppfylli kröfur marklýsingar skal nefndin í samráði við framkvæmdastjóra lækninga á viðkomandi heilbrigðisstofnun gera viðeigandi ráðstafanir.

Sérnám sem unnt er að stunda hér á landi, þar með talinn sérnámsgrunnur, skal fara fram á viðurkenndri heilbrigðisstofnun eða deild heilbrigðisstofnunar sem hlotið hefur viðurkenningu til slíks sérnáms af nefnd skv. 15. gr. Sérnám sem stundað er hér á landi að öllu leyti eða hluta skal fara fram í samræmi við námsaðferðir og vera í samræmi við marklýsingu, sbr. 15. gr., sem sett hefur verið fyrir sérgreinina.

Í marklýsingu skal meðal annars kveðið á um inntöku í sérnám, innihald, fyrirkomulag og lengd sérnámsins og einstakra námshluta, gæðakröfur, handleiðslu og hæfismat.

Sérnámið skal fara fram á ábyrgð framkvæmdastjóra lækninga heilbrigðisstofnunar sem viðurkennd hefur verið af nefnd skv. 15. gr. og skal framkvæmdastjóri lækninga skipa kennslustjóra með sérfræðileyfi í viðkomandi sérgrein sem umsjónarmann sérnámsins. Læknir í sérnámi og framkvæmdastjóri lækninga skulu gera með sér samning þar sem kveðið er á um réttindi og skyldur stofnunar og læknis í sérnámi, áætlun um sérnám sem og lengd og fyrirkomulag ætlaðrar sérnámsdvalar. Heimilt er að viðurkenna allt að eins árs vísindavinnu í stað eins árs í aðalgrein, enda sé það í samræmi við marklýsingu og samþykkt af kennslustjóra.

Áunnið sumarleyfi og vaktafrí sem tekin eru á sérnámstímanum reiknast sem hluti af heildarnámstíma. Fjarvistir umfram tvær vikur utan fastra réttinda á ári hverju lengja sérnám sem því nemur. Miðað skal við að starfshlutfall í sérnámi sé 100%. Sé starfshlutfall lægra, lengist lágmarksnámstími þannig að heildarnámstími samsvari minnst 72 mánuðum í fullu starfi að meðtöldum sérnámsgrunni.

Þeir sem ljúka sérnámi bæði í aðalsérgrein og undirsérgrein á sjö árum geta haft sveigjanlegri tímamörk milli aðalsérgreinar og undirsérgreinar en að framan getur, svo fremi sem hæfniviðmiðum marklýsinga sé fullnægt. Þó má aðalgrein aldrei taka skemmri tíma en þrjú ár.

Um frekari skilyrði fyrir veitingu sérfræðileyfis fer skv. 16. gr.

Um gjaldtöku fyrir veitingu sérfræðileyfis fer skv. 18. gr.

8. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "fyrir starfsnám til lækningaleyfis skv. 4. gr. og til að annast sérnám skv. 7. og 8. gr." í 2. og 10. mgr. kemur: til að annast sérnám skv. 7. og 8. gr., þar með talinn sérnámsgrunn.
  2. Í stað orðanna "starfsnám til starfsleyfis skv. 4. gr." í 3. mgr. kemur: sérnámsgrunn skv. 8. gr.
  3. Orðin "starfsnám og" í 8. mgr. falla brott.
  4. Á eftir orðinu "sérnám" í 8. mgr. kemur: , þar með talinn sérnámsgrunn,.
  5. Í stað orðsins "starfsnám" í 9. mgr. kemur: sérnámsgrunn.
  6. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Mats- og hæfisnefnd um sérnám í læknisfræði.

9. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 16. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins "eru" í 3. mgr. kemur: er.
  2. Táknin ", 4." í 4. mgr. falla brott.

10. gr.

Í stað ákvæða til bráðabirgða í reglugerðinni kemur nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Þeir sem lögðu stund á eða höfðu lokið formlegu starfsnámi, sambærilegu við það sem kveðið er á um í 3. mgr. 8. gr., við gildistöku reglugerðar þessarar, teljast við lok starfsnámstímans hafa lokið sérnámsgrunni, enda hafi starfsnámið farið fram samkvæmt marklýsingu skv. 15. gr.

11. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5., 8., 30. og 31. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, öðlast þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 9. apríl 2021.

Svandís Svavarsdóttir.

Hrönn Ottósdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.