Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

409/2013

Reglugerð um breytingu á reglugerð um sameiginlegar reglur um almenningsflug og stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu nr. 812/2012.

1. gr.

Við 3. gr. bætist nýr stafliður, sem orðist svo:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 646/2012 frá 16. júlí 2012 um ítarlegar reglur um sektir og févíti samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20, 28. mars 2013, bls. 675, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 42/2013 frá 15. mars 2013.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 7. mgr. 28. gr., 136. gr. a og 2. mgr. 146. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 24. apríl 2013.

Ögmundur Jónasson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.