Sjávarútvegsráðuneyti

832/2002

Reglugerð um bann við síldveiðum við Austurland. - Brottfallin

832/2002

REGLUGERÐ
um bann við síldveiðum við Austurland.

1. gr.

Frá kl. 15.00 30. nóvember 2002 eru allar síldveiðar bannaðar á svæði við Austurland sem markast af línu sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

1. 65° 25´00 N – 13° 40´00 V
2. 65° 25´00 N – 12° 10´00 V
3. 64° 48´10 N – 12° 28´00 V
4. 64° 48´10 N – 13° 50´00 V

Milli punkta 1 og 4 afmarkast svæðið af strandlengjunni.


2. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt 16. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 9. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 29. nóvember 2002.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica