Sjávarútvegsráðuneyti

779/2002

Reglugerð um bann við línu- og handfæraveiðum út af Deild. - Brottfallin

779/2002

REGLUGERÐ
um bann við línu- og handfæraveiðum út af Deild.

1. gr.

Frá og með 16. nóvember 2002 eru allar línu- og handfæraveiðar bannaðar á svæði út af Deild sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1. 66° 16´60 N – 23° 32´90 V
2. 66° 11´60 N – 23° 15´40 V
3. 66° 10´50 N – 23° 16´00 V
4. 66° 11´72 N – 23° 28´50 V
5. 66° 14´00 N – 23° 38´00 V

Milli punkta 3 og 4 afmarkast svæðið af ströndinni.


2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 14. nóvember 2002.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica