Sjávarútvegsráðuneyti

544/2002

Reglugerð um bann við línuveiðum út af Deild og Gelti. - Brottfallin

544/2002

REGLUGERÐ
um bann við línuveiðum út af Deild og Gelti.

1. gr.

Allar línuveiðar eru bannaðar á svæði sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1. 66° 09'00 N – 23° 36'00 V
2. 66° 11'00 N – 23° 45'00 V
3. 66° 14'00 N – 23° 38'00 V
4. 66° 11'72 N – 23° 28'50 V



2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast gildi 28. júlí 2002 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 25. júlí 2002.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica