Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

401/2019

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 404/2013 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 873/2012 um umbreytingarráðstafanir varðandi skrá Sambandsins yfir bragðefni og grunnefni í I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1334/2008.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 8/2019, frá 8. febrúar 2019, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1259 frá 20. september 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 873/2012 um umbreytingarráðstafanir varðandi skrá Sambandsins yfir bragðefni og grunnefni í I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1334/2008 að því er varðar framlengingu á umbreytingartímabilinu í 4. gr. sem varðar bragðefnið "grillbragðefnisþykkni (plöntu)" FL-númer 21.002. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 15, frá 21. febrúar 2019, bls. 658.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna matvælaeftirlits sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 15. apríl 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.