Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Stofnreglugerð

400/2009

Reglugerð um Orkustofnun.

1. gr.

Orkustofnun er sérstök ríkisstofnun, undir yfirstjórn iðnaðarráðherra.

2. gr.

Hlutverk Orkustofnunar er:

  1. að vera ríkisstjórninni til ráðuneytis um orkumál og önnur auðlindamál, sem stofnuninni eru falin með lögum, og veita stjórnvöldum ráðgjöf og umsagnir um þau mál,
  2. að standa fyrir rannsóknum á orku- og auðlindabúskap þjóðarinnar, á orkulindum landsins og hafsbotnsins og á öðrum jarðrænum auðlindum, þannig að unnt sé að meta þær og veita stjórnvöldum ráðgjöf um skynsamlega og hagkvæma nýtingu þeirra,
  3. að safna gögnum um orkulindir og aðrar jarðrænar auðlindir, nýtingu þeirra og orku- og auðlindabúskap landsmanna, varðveita þau og miðla upplýsingum til stjórnvalda og landsmanna,
  4. að vinna að áætlanagerð til langs tíma um orku- og auðlindabúskap þjóðarinnar og hagnýtingu orkulinda og annarra jarðrænna auðlinda landsins og hafsbotnsins,
  5. að stuðla að samvinnu þeirra, sem sinna orku- og auðlindarannsóknum og samræmingu á rannsóknarverkefnum,
  6. að annast stjórnsýsluverkefni samkvæmt lögum um Orkustofnun, orkulögum, raforkulögum, vatnalögum, lögum um jöfnun og lækkun hitunarkostnaðar, lögum um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar, lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku, lögum um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, lögum um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins og lögum um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis,
  7. að annast daglega umsýslu Orkusjóðs, og
  8. að annast önnur stjórnsýsluverkefni, sem stofnuninni eru falin samkvæmt lögum, stjórnvaldsfyrirmælum eða ákvörðun ráðherra.

Orkustofnun er heimilt að gera samninga við fyrirtæki eða stofnanir um framkvæmd skilgreindra verkefna, sbr. 2. og 3. tölul. 1. mgr. Leita skal staðfestingar ráðherra á samningum, sem gerðir eru til lengri tíma en tveggja ára. Stofnuninni er einnig heimilt að hafa samvinnu við stofnanir eða fyrirtæki um þjónustustarfsemi, svo sem rekstur húsnæðis, símavörslu og bókhalds-, starfsmanna- og tölvuþjónustu.

3. gr.

Ráðherra skipar forstöðumann Orkustofnunar, orkumálastjóra, til fimm ára í senn. Orkumálastjóri fer með stjórn og daglegan rekstur Orkustofnunar. Orkumálastjóri kemur fram fyrir hönd Orkustofnunar og ber ábyrgð á stjórnsýsluathöfnum hennar. Orkumálastjóri ræður annað starfslið stofnunarinnar.

Orkumálastjóri skal skipta fjárveitingum í samræmi við 2. mgr. 4. gr. og árangursstjórnunarsamning, sjá til þess, að starfsemi stofnunarinnar sé í samræmi við ákvæði laga og reglugerða og innan þess fjárhagsramma sem fjárlög afmarka hverju sinni auk þess að nægilegt eftirlit sé með bókhaldi og meðferð fjármuna stofnunarinnar.

Nánar skal kveðið á um verksvið og skyldur orkumálastjóra í erindisbréfi.

4. gr.

Starfsemi Orkustofnunar má skipta upp í sérstakar starfseiningar samkvæmt ákvörðun orkumálastjóra. Jarðhitaskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna skal vera sérstök rekstrareining með aðgreint kostnaðarbókhald og greiða sinn hlut í kostnaði vegna yfirstjórnar og sameiginlegrar þjónustu samkvæmt samþykktum um skiptingu kostnaðar.

Fjárveitingum til Orkustofnunar af fjárlögum skal varið til kostnaðar Orkustofnunar til þess að rækja hlutverk sitt samkvæmt 2. gr., svo og til rannsókna á orku- og auðlindum í samræmi við ákvæði fjárlaga. Endurgreiðslu framkvæmdaraðila á útlögðum rannsóknar- og áætlunarkostnaði af ríkisfé skal jafnframt varið til rannsókna, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 2. gr.

Orkumálastjóri gerir starfslýsingar starfsmanna Orkustofnunar í samráði við þá. Starfslýsingar skulu staðfestar af orkumálastjóra.

5. gr.

Helstu verkefni Orkustofnunar í auðlindamálum eru:

  1. að hafa frumkvæði að rannsóknum á jarðrænum auðlindum og nýtingu þeirra,
  2. að varðveita gögn ríkisins um jarðrænar auðlindir og skilaskyld gögn annarra,
  3. að sinna stjórnsýsluhlutverki sínu varðandi rannsóknarleyfi, nýtingarleyfi og virkjanaleyfi, og
  4. að miðla upplýsingum um auðlindamál.

6. gr.

Helstu verkefni Orkustofnunar í orkumálum eru:

  1. að hafa frumkvæði að rannsóknum á nýjum möguleikum til vinnslu, flutnings og nýtingar orku og áhrif þessara þátta á umhverfi og samfélag,
  2. söfnun gagna um orkuvinnslu, innflutning eldsneytis, orkunotkun og verðlag orku,
  3. tölfræði- og hagfræðileg úrvinnsla gagna,
  4. gerð orkuspáa,
  5. eftirlit með sérleyfisþáttunum í raforkugeiranum,
  6. umsjón með niðurgreiðslum vegna húshitunarkostnaðar,
  7. umsýsla orkuráðs og umsjón með Orkusjóði,
  8. að stuðla að skilvirkri orkunotkun og nýtingu nýrra orkugjafa, og
  9. að miðla upplýsingum um orkumál.

7. gr.

Jarðhitaskóli skal starfræktur samkvæmt samningi við Háskóla Sameinuðu þjóðanna, eftir því sem fé er veitt til skólans eða hann aflar. Aðalstarfsemi Jarðhitaskólans eru sex mánaða sérhæfð námskeið og starfsþjálfun í jarðhitafræðum fyrir nemendur með háskólapróf sem einkum koma frá þróunarlöndunum á vegum Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Skólinn heldur einnig styttri námskeið innanlands og utan og tekur þátt í alþjóðasamstarfi á sínu sviði. Við skólann starfar námsráð sem forstöðumaður skipar. Jarðhitaskólanum er heimilt að hafa umsjón með og veita styrki til framhaldsnáms, meistaraprófs (MSc) eða doktorsprófs (PhD) í jarðhitafræðum í samstarfi við þar til bæra háskóla.

8. gr.

Helstu verkefni í daglegum rekstri eru:

  1. að annast fjármál, greiðslu gjalda og innheimtu tekna Orkustofnunar, auk bókhalds og almennrar skrifstofuþjónustu,
  2. að annast starfsmannamál og afgreiðslu launa,
  3. að annast tölvumál, símsvörun, bókasafn og skjalasafn Orkustofnunar, og
  4. að annast rekstur húsnæðis og mötuneytis.

Orkustofnun er heimilt að leita samstarfs við stofnanir og fyrirtæki um að annast einstaka ofangreinda þætti, í félagi enda skal þess gætt að eðlileg kostnaðarskipting komi til eða samkvæmt verktakasamningi enda sé fylgt reglum um slík viðskipti.

9. gr.

Orkustofnun skal gera framkvæmdaáætlun til fjögurra ára í senn um þau verkefni, sem stofnunin vinnur að skv. 2. og 3. tölul. 1. mgr. 2. gr. reglugerðar þessarar, sem lögð skal fyrir ráðherra til staðfestingar. Áætlunin skal endurskoðuð árlega.

10. gr.

Orkustofnun annast daglega umsýslu Orkusjóðs. Hjá Orkustofnun starfar orkuráð, sbr. 6. gr. laga um Orkustofnun, sem gerir tillögur til ráðherra um lánveitingar og greiðslur úr Orkusjóði. Um Orkusjóð og Orkuráð gildir reglugerð um Orkusjóð, nr. 514/2003.

Orkusjóður undir umsjón Orkustofnunar annast daglega umsýslu Kolvetnisrannsóknasjóðs. Um Kolvetnisrannsóknasjóð fer skv. ákvæðum laga um leit, rannsóknir og vinnslu, nr. 13/2001 og reglugerðar um kolvetnisrannsóknasjóð, nr. 39/2009.

11. gr.

Orkumálastjóri skal setja Orkustofnun skipurit, sem ráðherra staðfestir, þar sem nánar er kveðið á um innra skipulag hennar í samræmi við reglugerð þessa.

12. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 9. gr. laga um Orkustofnun nr. 87/2003. Reglugerðin öðlast gildi við birtingu. Jafnframt fellur úr gildi fyrri reglugerð um Orkustofnun, nr. 308 frá 22. mars 2004.

Iðnaðarráðuneytinu, 31. mars 2009.

Össur Skarphéðinsson.

Kristján Skarphéðinsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.