Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

398/2015

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 496/2013 um prófunaraðferðir samkvæmt reglugerð nr. 750/2008 um skráningu, mat, leyfisveitingar og takmarkanir að því er varðar efni („REACH“).

1. gr.

Við 2. gr. bætast tveir nýir stafliðir, sem orðast svo:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 260/2014 frá 24. janúar 2014 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 440/2008 þar sem mælt er fyrir um prófunaraðferðir samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir, að því er varðar efni, í því skyni að laga hana að tækniframförum (efnareglurnar (REACH)). Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23 frá 23. apríl 2015, 2015/EES/23/50, bls. 347-599.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 900/2014 frá 15. júlí 2014 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 440/2008 þar sem mælt er fyrir um prófunaraðferðir samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir, að því er varðar efni, í því skyni að laga hana að tækniframförum (efnareglurnar (REACH)). Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23 frá 23. apríl 2015, 2015/EES/23/72, bls. 899-1009.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á eftirfarandi EES-gerðum:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 260/2014 frá 24. janúar 2014 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 440/2008 þar sem mælt er fyrir um prófunaraðferðir samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir, að því er varðar efni, í því skyni að laga hana að tækniframförum (efnareglurnar (REACH)).
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 900/2014 frá 15. júlí 2014 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 440/2008 þar sem mælt er fyrir um prófunaraðferðir samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir, að því er varðar efni, í því skyni að laga hana að tækniframförum (efnareglurnar (REACH)).

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í a-lið 1. tölul., d-lið 2. tölul. og 5. tölul. 11. gr., sbr. 22. gr. og 31. gr. efnalaga nr. 61/2013 og öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 28. apríl 2015.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.