Sjávarútvegsráðuneyti

822/2001

Reglugerð um bann við veiðum með fiskibotnvörpu á Rifsbanka. - Brottfallin

822/2001

REGLUGERÐ
um bann við veiðum með fiskibotnvörpu á Rifsbanka.

1. gr.

Frá og með 5. nóvember 2001 eru allar veiðar með fiskibotnvörpu óheimilar á Rifsbanka, á svæði sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta.


1. 67° 07'00 N – 15° 42'00 V
2. 66° 54'00 N – 15° 31'00 V
3. 66° 54'00 N – 15° 45'00 V
4. 67° 06'00 N – 15° 54'00 V


2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 1. nóvember 2001.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica