Sjávarútvegsráðuneyti

880/2000

Reglugerð um bann við togveiðum suður af Dyrhólaey. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um bann við togveiðum suður af Dyrhólaey.

 

1. gr.

Frá og með 9. desember 2000 eru allar togveiðar óheimilar á svæði suður af Dyrhólaey, sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

 

          1.       63°24'0 N — 18°40'0 V

          2.       63°22'0 N — 18°40'0 V

          3.       63°19'4 N — 18°51'0 V

          4.       63°19'5 N — 19°07'5 V

          5.       63°22'6 N — 19°30'0 V

          6.       63°28'8 N — 19°30'0 V

 

2. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt 16. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 9. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð nr. 775, 3. nóvember 2000, um bann við togveiðum og dragnótaveiðum suður af Dyrhólaey.

 

Sjávarútvegsráðuneytinu, 7. desember 2000.

 

Árni M. Mathiesen.

Jón B. Jónasson.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica