Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

393/2014

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur.

1. gr.

Við 7. gr., bætast tveir nýir stafliðir, d og e:

  1. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar frá 25. nóvember 2013 um viðmiðunarreglur um I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur (2013/674/ESB), sem vísað er til í tölulið 1aa, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 54/2014, þann 4. apríl 2014 öðlast gildi hér á landi. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23 frá 10. apríl 2014, bls. 959-982.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1197/2013 frá 25. nóvember 2013 um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 46/2014, þann 4. apríl 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 23 frá 10. apríl 2014, bls. 347-406.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirfarandi EES-gerðum:

  1. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar frá 25. nóvember 2013 um viðmiðunarreglur um I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur (2013/674/ESB).
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1197/2013 frá 25. nóvember 2013 um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. tölul. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 25. apríl 2014.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.