Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Breytingareglugerð

393/1999

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 189/1990 um innflutning og útflutning á plöntum og plöntuafurðum.

1. gr.

F-liður 4. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

f. Jarðveg, safnhaugamold, óunninn eða kurlaðan trjábörk og húsdýraáburð. Undanskilin er þó mold, sem að

meginhluta samanstendur af mosa (Sphagnum), enda sé hún tekin frá óræktuðum svæðum og hafi aldrei verið notuð til ræktunar. Þá er undanskilin mold, sem fylgir rótum plantna eða rótarávöxtum, enda sé hún í óverulegum mæli. Frá löndum þar sem nýsjálenski flatormurinn (Artioposthia triangulata) er útbreiddur skulu plöntur og plöntuafurðir vera alveg lausar við mold nema sérstök yfirlýsing sé um það á heilbrigðisvottorði að plönturnar séu frá ræktunarstað þar sem flatormurinn finnst ekki.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 51/1981 um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum og í samræmi við tilskipun nr. 83/189/EBE um reglur um tilhögun upplýsingaskipta vegna tæknilegra staðla og reglugerða og öðlast gildi þegar í stað. Jafnframt er úr gildi felld reglugerð nr. 123/1995.

Landbúnaðarráðuneytinu, 1. júní 1999.

Guðni Ágústsson.

Hjördís Halldórsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.