Fara beint í efnið

Prentað þann 19. mars 2024

Breytingareglugerð

392/2013

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 1020/2011 um rafhlöður og rafgeyma.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 20. gr. a reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "reglugerð sem vísað er til í lið 12zzd" í 1. mgr. kemur: reglugerðir sem vísað er til í.
  2. Við 1. mgr. bætist nýr stafliður, b-liður, sem orðist svo:
    Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 493/2012 frá 11. júní 2012 þar sem mælt er fyrir um ítarlegar reglur, samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2006/66/EB, varðandi útreikning á endurvinnslunýtni í endurvinnsluferlum fyrir notaðar rafhlöður og rafgeyma, sem vísað er til í lið 12zzi II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 213/2012 frá 7. desember 2012. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 14 frá 2013 - 2013/EES/14/02 bls. 296-308.

2. gr. Innleiðing.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 493/2012 frá 11. júní 2012 þar sem mælt er fyrir um ítarlegar reglur, samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2006/66/EB, varðandi útreikning á endurvinnslunýtni í endurvinnsluferlum fyrir notaðar rafhlöður og rafgeyma, sem vísað er til í lið 12zzi II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 213/2012 frá 7. desember 2012.

3. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 29. gr., sbr. 20.-23. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs og 5. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 26. apríl 2013.

F. h. r.

Stefán Thors.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.