Sjávarútvegsráðuneyti

544/1999

Reglugerð um bann við veiðum með fiskbotnvörpu út af Víkuráli - Brottfallin

REGLUGERÐ

um bann við veiðum með fiskibotnvörpu út af Víkuráli.

1. gr.

Frá kl. 21.00 þann 12. ágúst 1999 eru allar veiðar með fiskibotnvörpu óheimilar á svæði út af Víkuráli, sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1.

65°59´N - 26°54´V

3.

65°43´N - 27°33´V

2.

65°43´N - 27°13´V

4.

65°59´N - 27°18´V

2. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt 16. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 9. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 11. ágúst 1999.

F. h. r.

Þorsteinn Geirsson.

Snorri Rúnar Pálmason.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica