Sjávarútvegsráðuneyti

347/1997

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 298, 14. maí 1997, um verndun smáfisks við tog- og dragnótaveiðar fyrir Suðurlandi. - Brottfallin

Reglugerð

um breytingu á reglugerð nr. 298, 14. maí 1997,

um verndun smáfisks við tog- og dragnótaveiðar fyrir Suðurlandi.

1.gr.

            Við 2. grein bætist ný málsgrein er orðist svo: Séu veiðar stundaðar með leggglugga skal lágmarksmöskvastærð gluggastykkisins og aftan þess vera 135 mm.

2.gr.

            Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 81, 31. maí 1976, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast gildi 15. júní 1997.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 13. júní 1997.

F.h.r.

Árni Kolbeinsson.

Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica