Sjávarútvegsráðuneyti

540/1998

Reglugerð um úthafsrækjuveiðisvæði og notkun seiðaskilju við rækjuveiðar. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um úthafsrækjuveiðisvæði og notkun seiðaskilju við rækjuveiðar.

1. gr.

            Skipum sem heimild hafa til veiða á úthafsrækju er heimilt að stunda veiðar á rækju utan viðmiðunarlínu sbr. lög nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með eftirfarandi takmörkunum:

1.         Fyrir Suðurlandi eru allar rækjuveiðar bannaðar á svæði milli 14°30'V og 23°00'V allt árið.

2.         Við Eldey eru rækjuveiðar bannaðar á svæði sem að sunnan markast af línu sem dregin er réttvísandi 245° frá Reykjanesaukavita. Að vestan markast svæðið af 23°40'V og að norðan af 64°05'N.

3.         Fyrir Vesturlandi austan 25°30'V milli 64°N og 65°30'N eru úthafsrækjuveiðar bannaðar öllum skipum sem eru 39 metrar að mestu lengd eða lengri og enn fremur skipum með 1100 hestafla aðalvél eða stærri.

4.         Fyrir Norðurlandi, á svæði milli lína sem dregnar eru réttvísandi norður frá Horni og Rauðanúp eru úthafsrækjuveiðar bannaðar öllum skipum sem eru 200 brúttórúmlestir og stærri, sunnan 66°40'N, á tímabilinu frá og með 15. maí til og með 31. október ár hvert. Þó er skipum með aflvísi 2000 eða lægri, sbr. 5. gr. laga nr. 79/1997, heimilt að stunda veiðar sunnan línunnar.

2. gr.

            Þrátt fyrir 1. gr. eru rækjuveiðar heimilar á svæði í Héraðsflóa milli lína sem dregnar eru réttvísandi austnorðaustur frá Bjarnareyjarvita og Ósfles.

            Þá eru og bátum, 100 brúttórúmlestir og minni, heimilar rækjuveiðar á utanverðum Húnaflóa frá og með 15. ágúst til og með 31. október ár hvert, utan línu sem dregin er milli eftirgreindra staða: Selskers, Gjögurs, Kálfshamars, Rifsness og Ásbúðarrifs.

3. gr.

            Skylt er við rækjuveiðar á svæði sem skilgreint er í 1.-2. gr. að nota seiðaskilju við veiðarnar.

            Seiðaskilja skal þannig gerð að bil milli rimla skal mest vera 22 mm. Skiljunni skal komið fyrir í belg vörpunnar með u.þ.b. 45-50 gráðu halla þannig að neðri kantur skiljunnar nái lengra fram. Skiljan skal fylla út í belginn og skulu allir jaðrar hennar festir við netið í belgnum. Á efra byrði vörpunnar fyrir framan skiljuna skal vera gat þar sem fiskur skilst út.

4. gr.

            Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. lögum nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

5. gr.

            Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt er frá sama tíma felld úr gildi reglugerð nr. 303, 23. maí 1995, um úthafsrækjuveiðisvæði og notkun seiðaskilju við rækjuveiðar, með síðari breytingum.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 9. september 1998.

Þorsteinn Pálsson.

Árni Kolbeinsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica