Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

385/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 290/2009, um fyrirkomulag og eftirlit með tímabundnum útgreiðslum séreignarsparnaðar.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. 1. mgr. orðast svo:
    Á tímabilinu 1. apríl 2020 til 1. janúar 2021 er vörsluaðilum séreignarsparnaðar heimilt að hefja útgreiðslu séreignarsparnaðar eftir því sem nánar er mælt fyrir um í ákvæði þessu.
  2. 2. mgr. orðast svo:
    Heimilt er á því tímabili sem tilgreint er í 1. mgr. að hefja útborgun innstæðu séreignarsparnaðar rétthafa, ásamt vöxtum, að fjárhæð sem þann 1. apríl 2020 nam samanlagt allt að 12.000.000 kr. óháð því hvort samanlagður séreignarsparnaður sé í vörslu hjá fleiri en einum vörsluaðila. Skal sú fjárhæð greiðast út með jöfnun mánaðarlegum greiðslum, að frádreginni staðgreiðslu, samkvæmt lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, í 15 mánuði frá því að beiðni um útgreiðslu er lögð fram hjá vörsluaðila. Útgreiðslutími styttist hlutfallslega ef um lægri útgreiðslu en 12.000.000 kr. er að ræða.
  3. Í stað orðsins "ríkisskattstjóra" í 4. mgr. kemur: Skattsins.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins "ríkisskattstjóri" í 1.-3. mgr. kemur: Skatturinn.
  2. Í stað orðsins "ríkisskattstjóra" í 2. og 4. mgr. kemur: Skattinum.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í ákvæði til bráðabirgða VIII við lög nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 7. apríl 2020.

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Anna V. Ólafsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.